Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Mikill áhugi á þróun listnáms á háskólastigi á Norðurlandi

  • 12.febrúar 2026

Samstarf Listaháskóla Íslands (LHÍ) og Háskólans á Akureyri (HA) var kynnt á opnum kynningarfundi í Listasafninu á Akureyri þann 10.febrúar 2026. Samstarfið felst í þróun listnáms á háskólastigi á Akyreyri þar sem þrjár deildir LHÍ vinna í nánu samstarfi við HA að uppbyggingu námsframboðs í listum á Norðurlandi. Markmið verkefnisins er að auka aðgengi að listnámi utan höfuðborgarsvæðisins og styrkja tengsl lista, fræða og samfélags.

Fundurinn var afar vel sóttur en þar var farið yfir stöðu verkefnisins, útfærslu námsins, framtíðaráform og áætlun fyrir árið 2026. Verkefnið hlaut mikinn hljómgrunn meðal fundargesta sem báru ótal spurningar á borð.


Fyrirkomulag námsins

Námsfyrirkomulagið er sveigjanlegt og byggir bæði á staðnámi á Akureyri og fjarnámi í rauntíma, sem opnar dyr fyrir breiðan hóp þátttakenda. Námskeiðin eru mótuð á grundvelli þarfagreiningar sem framkvæmd var meðal starfsfólks HA, LHÍ og í samtali við grasrótina á svæðinu, þar á meðal listafólk, menningarstofnanir, skóla og aðra hagsmunaaðila. Þá mun HA leggja verkefninu til kennslufræðilegan stuðning og hugmyndafræðilegan grunn sem styður kennara LHÍ í þróun fjarnáms- og dreifnámsleiða í verklegu listnámi. Þannig skapast nýjar aðferðir sem gera þátttöku mögulega þrátt fyrir fjarlægðir og draga úr þörf nemenda á landsbyggðinni til að flytja á höfuðborgarsvæðið til að stunda listnám. Næstu skref verða kynnt síðar í mánuðinum ásamt námskeiðum sem verða í boði.

Frekari upplýsingar um námið veita:
Ásthildur Jónsdóttir – astajons@lhi.is
Tom Barry – tom@unak.is