Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Skólagjöld fellt niður frá hausti 2024 við Listaháskóla Íslands

  • 29.febrúar 2024

Skólagjöld felld niður frá hausti 2024 við Listaháskóla Íslands

Fyrr í dag tilkynnti Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra að skólastjórnendum sjálfstætt starfandi háskóla standi til boða að fá óskert fjárframlög frá ríkinu gegn afnámi skólagjalda. Þetta er mikið fagnaðarefni þar sem Listaháskóli Íslands hefur lengi talað fyrir því að afnema skólagjöld og munu breytingarnar taka gildi frá og með hausti 2024. Þegar upp er staðið muni nemendur skólans þá aðeins greiða skrásetningargjöld sambærileg þeim sem eru hjá opinberu háskólunum.

„Þetta eru stór tímamót í sögu skólans og mikilvægasta jafnréttismál hvað varðar aðgengi nemenda að háskólanámi í listum hér á landi,“ segir Kristín Eysteinsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands. „Við höfum lengi bent á það ójafnræði sem felst í því að nám í listum sé bundið skilyrðum um skólagjöld umfram nám í öðrum háskólagreinum. Í þessu felast jafnari tækifæri til aðgengis að listnámi óháð efnahag sem er mikið fagnaðarefni. Við væntum þess að ákvörðunin feli í sér enn fjölbreyttari hóp umsækjenda, og þar af leiðandi hóp nemenda, á komandi árum.“

Aðrar fréttir og greinar