Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

Tónlistardeild

Decor overlay

Starf tónlistarmannsins breytist hratt, verður sífellt fjölbreytilegra og teygist víðar þvert á landamæri. Lengi hefur skort á að í boði sé einstaklingsmiðað tónlistarnám sem sniðið er að þörfum hvers og eins.

Höfuðáhersla tónlistardeildar er að innsæi og forvitni er drifkraftur sköpunar. Deildin hefur sérstöðu í framsæknu námi sem byggir á arfleifð, sögu, þekkingu og tækni. Markmið deildarinnar er að stuðla að þroska og efla nemendur til sjálfstæðis með sterka vitund fyrir nýsköpun, samfélagi og samstarfi.

Hlutverk tónlistardeildar er að mennta tónlistarmenn og undirbúa þá fyrir störf í tónlist á breiðum grundvelli. Markmiðið er að þeir tileinki sér sjálfstæð vinnubrögð, auki við þekkingu sína og færni og rækti sjálfa sig sem sjálfstæða listamenn. Námið skal standast alþjóðlegar kröfur og taka mið af fjölbreyttum verkefnum tónlistarmanna í tónlistarflutningi, nýsköpun og við kennslu. Útskrifaðir nemendur tónlistardeildar eiga að vera afl sem auðgar samfélagið.