Automatic translation by Google Translate.We cannot guarantee that it is accurate.

Skoða vefinn á Íslensku

B.Arch

Decor overlay

B.Arch-nám í arkitektúr undirbýr nemendur til taka þátt í mótun samfélags með fagurfræði, jafnrétti, sjálfbærni og gagnrýna hugsun leiðarljósi. 

  • Opnað fyrir umsóknir

    9. janúar 2024

  • Umsóknarfrestur

    12. apríl 2024

  • Umsóknum svarað

    Maí / júní 2023

  • Skrásetningargjald

    Skoða nánar

  • Nafn námsleiðar

    B.Arch

  • Nafn gráðu

    BA

  • Einingar

    180 ETC

  • Lengd náms

    6 annir – 3 ár

Information is provided in Icelandic for study programmes that have Icelandic as the primary language of instruction.

Um námið

B.Arch-nám í arkitektúr er 180 eininga námsleið fyrir þau sem vilja taka þátt í mótun samfélags með fagurfræði, jafnrétti, sjálfbærni og gagnrýna hugsun að leiðarljósi. Nemendur þróa sitt eigið listræna næmi, persónulegu nálgun og tæknilegu hæfni, hvort sem er í ræðu, riti eða rými. Þau læra að taka virkan þátt í mótun þess sem fyrir er, hvort sem er í borg eða í náttúru og er vinna með öðrum mikilvægur hluti af í því, enda er arkitektúr í eðli sínu hópvinna. Þau læra að vera virkir og gagnrýnir samfélagsþegnar sem gera sér grein fyrir siðferðislegum og umhverfislegum afleiðingum gjörða sinna og fá tól í hendur til að breyta til batnaðar með arkitektúr. 

Uppbygging náms

Námið er þrjú ár sem skiptast í tvær fimmtán vikna annir til 180 ECTS. Námið samanstendur af vinnustofum (114 ECTS), fræðinámskeiðum (56 ECTS) og tækninámskeiðum (10 ECTS).  

  • Fyrsta námsár leggur áherslu á tilraunir með rými og form. Kynnt eru grunnhugtök og vinnuaðferðir arkitektúrs með áherslu á handteikningu og líkanagerð.  
  • Annað námsár leggur áherslu á borgina. Nemendur læra að greina hverfi og hanna byggingu í borgarlandslaginu jafnframt því sem þau tileinka sér helstu tölvuforrit. 
  • Þriðja námsár leggur áherslu á landsbyggðina og samspil við náttúruna og hvetur til umbreytingar núverandi bygginga. Nemendur skrifa lokaritgerð á haustönn en vorönn er helguð lokaverkefni. 

Að loknu námi

Að loknu þriggja ára námi útskrifast nemendur með BA-gráðu í arkitektúr sem gerir þeim kleift að sækja um framhaldsnám í faginu og öðlast að því loknu full starfsréttindi sem arkitektar. BA-nám í arkitektúr nýtist fjölbreyttum verkefnum og störfum sem tengjast umhverfi, samfélagi og öðrum skapandi greinum. 

Umsóknar- og inntökuferli

  • Rafræn umsókn er fyllt út í umsóknargátt.
  • Athugið: fylla þarf út alla stjörnumerkta reiti og hengja við þau skjöl sem óskað er eftir, greiða umsóknargjald og staðfesta umsókn.
  • Staðfest afrit af prófskírteini (ljósrit gildir ekki) með stimpli frá viðkomandi skóla og skannað námsferilsyfirlit og hengt við rafræna umsókn.
  • Ef fylgiskjöl eru ekki í lagi, fær umsækjandi póst og möguleika á að lagfæra umsóknina.
  • Umsækjandi fær staðfestingu á að rafræn umsókn sé fullgild.

Opnað fyrir umsóknir

9. janúar 2024

Umsóknarfrestur

12. apríl 2024

Umsóknum svarað

Maí / júní 2023

Verðskrá

Skoða nánar

Sérleiðbeiningar fyrir arkitektúrdeild

  • 1. Mappa/Portfolio

    Skylda
    • Athugið að aðeins má skila efnislegri möppu þegar sótt er um nám í BA arkitektúr við Listaháskóla Íslands.
    • Skilafrestur á efnislegri möppu/portfolio er 12. apríl 2024.
    • Skila skal efnislegri ferilmöppu á skrifstofu LHÍ í Þverholti 11, 5. hæð.
    • Athugið að það þarf að láta vita í stjörnumerktum reit í umsóknargátt að efnislegri möppu/portfolio verði skilað.
    • Ef verið er að sækja um á fleiri námsleiðum eða deildum, þarf að skila inn umsókn og möppu/portfolio fyrir hverja námsleið/deild.

    Umsækjendur skulu safna sýnishornum af verkum sínum saman í möppu/portfolio á efnislegu formi.

    Verkin eiga að endurspegla persónulega sýn nemandans, varpa ljósi á helstu hugðarefni hans og úr þeim á að vera hægt að lesa hvaða hæfileika hann hefur til frumlegrar sköpunar og framsetningar á hugmyndum sínum.

    Ekki er nauðsynlegt að öll verkin séu fullgerð eða þau útfærð til hins ýtrasta, þvert á móti er mikilvægt að þar sé einnig að finna hvers konar skissur, teikningar, ljósmyndir eða texta. Öll verk í möppunni/portfolio eiga að vera höfundarverk umsækjanda, ef verk hefur verið unnið í hópavinnu eða samstarfi er nauðsynlegt að taka það fram.

    ATH:

    • Mappan/portfolio skal vera nafnlaus en umsækjandi skal merkja hana með kennitölu og fullu nafni.
    • Umsækjandi þarf sjálfur að meta hvað rúmast innan möppunnar/portfolio en mikilvægt er að hún endurspegli getu, færni og sýn hans á fagið í gegnum skapandi vinnu.
      Efni utan möppunnar s.s. hlekkir eða vísanir í önnur skjöl er litið á sem ítarefni og ekki tryggt að það verði skoðað.
    • Athugið að inntökuferlið er nafnlaust, en við biðjum þig að lesa vel yfir leiðbeiningarnar hér fyrir neðan varðandi merkingu á möppu:
      Að merkja möppuna

    Að merkja möppuna

    • Á efnislegri möppu á að láta fylgja blað þar sem kemur fram skýrt fullt nafn og kennitala. Þetta blað verður tekið í burtu áður en inntökunefnd fær möppuna í hendurnar.

    Ef mappa/portfolio er póstlögð:

    Ef mappan/portfolio er send með pósti þarf póststimpill að vera dagsettur í síðasta lagi 12. apríl 2024.
    Senda skal möppuna/portfolio með rekjanlegum pósti og merkja umslagið með bæði sendanda og umsóknarnúmeri.
    Heimilisfang hönnunardeildar er:
    Listaháskóli Íslands, hönnunardeild
    Þverholt 11, 105 Reykjavík
    Skrifstofa 5. hæð.
  • 2. Kynningarbréf

    Skylda

    Umsækjendur gera grein fyrir ástæðu umsóknar í viðkomandi námsleið.

  • 3. Inntökuferli

    Skipuð er inntökunefnd fyrir hverja námsleið.
    Nefndin er skipuð tveimur til þremur sérfræðingum á viðkomandi fagsviði, sem velja úr hópi umsækjenda.
    Inntökuferlið er eftirfarandi:
    1. Umsóknir metnar af inntökunefnd. Umsækjendur sem standast mat inntökunefndar komast í úrtakshóp og eru boðaðir í viðtal.
    2. Viðtal. Áhugi umsækjanda á tilvonandi námi, afstöðu hans og viðhorfi til fagsins er kannaður
    ATH:
    • Inntökunefnd er heimilt að óska eftir sérverkefni af umsækjanda ef þess er talin þörf.
    • Öllum umsækjendum verður sent rafrænt svar við umsóknum í maí/júní.
    • Umsækjendur sem hafa hlotið skólavist þurfa að greiða staðfestingargjald að upphæð 75.000 kr sem er sent í heimabanka þeirra. Gjaldið gengur upp í skólagjöld.
    • Niðurstöður inntökunefnda eru endanlegar og er ekki skylt að gefa nánari útskýringu á synjun um skólavist.
  • 4.Inntökuskilyrði

    Skylda

    Miðað er við að umsækjendur hafi lokið stúdentsprófi eða sambærilegu námi.

  • 5. Undanþágur vegna inntöku

    Listaháskólanum er heimilt að veita þeim umsækjendum inngöngu í skólann sem búa yfir þekkingu og reynslu sem telst fullnægjandi undirbúningur til bakkalárnáms við skólann.

    Þá þarf umsækjandi að hafa lokið eigi færri en 105 einingum úr eldra kerfi framhaldsskólastigsins eða 150 framhaldsskólaeiningum samkvæmt nýja kerfinu.

    Til þess að fá undanþágu fyrir samþykki á skólavist þarf umsækjandi sem uppfyllir ekki kröfur um menntun (stúdentspróf eða sambærilegt nám) að sýna fram á framúrskarandi hæfni, þekkingu og sýn á fagið með innsendri möppu/portfolio.

Á döfinni í arkitektúrdeild