Opinn fyrirlestur – Studio Bua
Studio Bua er arkitektastofa í London sem stofnuð var árið 2017 af arkitektunum Mark Smyth og Sigrúnu Sumarliðadóttur.
Stofan vinnur að fjölbreyttum verkefnum á sviði arkitektúrs,
innanhússhönnunar og sýningahönnunar, þar sem áherslan er lögð á sjálfbærni, vandað handverk og tengingu við menningararf. Með mannmiðaðri nálgun leitar Studio Bua sífellt að samræðu milli hins grandvallaða og hins nýstárlega, með það að leiðarljósi að hönnun eigi að vera bæði einlæg og nærandi fyrir fólkið sem nýtir rýmin.
Þrátt fyrir ungan aldur hefur stofan hlotið ótal viðurkenningar svo sem Architectural Digest’s AD100 2023, Icelandic Design Award 2023 [Finalist], Dezeen Award for Residential Rebirth Project of the Year 2022 [Winner], AR House Award 2021 [Commended], AJ Small Projects Awards 2021 [Finalist] og AIA UK 2020 Excellence in Design Awards – Emerging Practice [Winner].
Hér á Íslandi er stofan þekktust fyrir endurhönnun sína á fyrrum eyðibýlunum Nýp og Heinabergi á Skarðsströnd.
Arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands býður upp á fyrirlestur Sigrúnar um verk stofunnar miðvikudaginn 26.ágúst kl 12:15-13 í Skriðu.