Date
9 October 2026
Time
12:15–13:00
Location
Dynjandi - Skipholt 31
Department
Department of Music

The lecture series Context welcomes Guðmund Stein Gunnarsson föstudaginn 9. október með fyrirlesturinn Hugleiðingar um vanamyndanir í tónlist þar sem Guðmundur Steinn mun fjalla um sínar tónsmíðaaðferðir og hugmyndir almennt. Míkrótóna, hljóð, þýðanleiki þeirra, þolmörk og þröskuldar verða meðal umfjöllunarefna, hvernig hávaði getur tekið á sig mynstur og orðið allt að því merkingarbær. Hvernig mynstur geta dansað á mörkum merkingarleysi og skiljanleika á sama tíma.Hreyfinótur og tjáskiptamynstur fyrir flæðandi hrynjandi verða jafnframt á dagskrá. Endurtekningin og undantekningin, vanamyndanir og skynjun á lögun þess loðna og óljósa, fegurð í grófum og hversdagslegum hlutum

Viðburðurinn er í Dynjanda, sal Tónlistardeildar og er öllum opinn.

//

The lecture series Context welcomes Guðmundur Steinn Gunnarsson on Friday, October 9, with the lecture Contemplations on habit formations in music.

Guðmundur Steinn will discuss his compositional methods and wider ideas about music: microtones, thresholds and tolerance, and how noise can take on pattern and become almost meaningful. He will also touch on movement-based notation, repetition and exception, and the beauty of the rough and the everyday.

The event takes place in Dynjandi, the Music Department’s hall, and is open to all.

 

 

Sem nemandi við L.H.Í. í upphafi þessarar aldar fékk Guðmundur Steinn Gunnarsson hugmyndir af verkum sem hann hafði ekki hugmynd um hvernig ætti að nótera. Ekkert virtist passa inn í kassalaga framsetningu vestrænnar nótnamyndar. Við að kynnast fólki sem síðar varð hluti af S.L.Á.T.U.R. hópnum opnuðust nýjar leiðir með hreyfinótnaskrift sem Guðmundur hefur notast við síðastliðinn 20 ár. Á þeim tíma hefur hann samið yfir 250 verk sem flutt hafa verið víða um heim, komið út á plötum og  skrifað hefur verið um í The Wire, Bandcamp Daily, Quietus, Positionen o.fl.

Facebook event