Date
15 October 2026
Time
16:30–19:00
Location
Laugarnes lecture hall, L193
Department
Department of Fine Art

Myndlist á Íslandi og Arts and Culture Magazine Publishers Forum (ACMPF) standa saman að pallborðsumræðum og opnu samtali um útgáfu sem miðlun og leið til að skapa tengsl. Oft er litið á útgáfu fyrst og fremst sem leið til að koma efni og hugmyndum á framfæri en útgefendur, þýðendur, ritstjórar, höfundar og listamenn starfa að sama skapi oft á mörkum ólíkra tungumála, menningarheima, lesendahópa og þekkingarsviða. Hvort sem gefið er út á einu eða fleiri tungumálum, hvort sem það er á tungumáli viðkomandi lands eða ensku geta slíkar útgáfur myndað brú milli tungumála og komið listum og umræðu til skila milli ólíkra mál- og menningarheima.

Þetta samtal leiðir saman útgefendur, höfunda og listamenn frá Norðurlöndum og Eystrarsaltslöndunum til að ræða þýðingar í breiðum skilningi, einna helst það sem fellur utan hefðbundinnar skilgreiningar þeirra. Rætt verður um hvernig listir og útgáfustarf geta opnað boðleiðir milli tungumála, menningarheima og ólíkra fræðasviða og hvað gerist þegar hugmyndir, verk og umræða færast úr einu samhengi í annað.

Spurt er: Hvað þýðir það að gefa út á milli tungumála? Hvað er ómögulegt að þýða? Og hvernig getur útgáfa skapað nýjan skilning milli lítilla málsvæða?

Becky Forsythe og Hólmar Hólm stýra umræðum. Nýlegar prentútgáfur frá þeim sem taka þátt verða til sýnis á meðan á viðburðinum stendur. Að pallborðsumræðunum loknum gefst svo tækifæri til að eiga óformlegt spjall, kynnast og ræða samstarfsmöguleika.

ACMPF er tengslanet útgefenda myndlistar- og menningartímarita á Norðurlöndum og í Eystrasaltslöndunum. Aðild að því eiga A Shade Colder (Eistlandi), Artnews.lt og Echo Gone Wrong (Litháen), EDIT (Finnlandi), Kunstkritikk (Norðurlöndunum), Myndlist á Íslandi og WunderKombinats (Lettlandi). Viðburðurinn er hluti af dagskrá ACMPF í Reykjavík, sem styrkt er af Norrænu ráðherranefndinni í gegnum Nordic-Baltic Mobility Programme for Culture.

15. október 2026
Fyrirlestrasalur L193, LHÍ Laugarnes

Laugarnesvegur 91, 105 Reykjavík

16:30-18:00
Pallborðsumræður og opið samtal

18:00-19:00
Óformlegt spjall

Facebook Event