Endurbótum á fyrirlestrarsalnum Skriðu er lokið og salurinn nú betur búinn til fjölbreyttrar notkunar. Auk fyrirlestra og kynninga er Skriða nú útbúin fyrir tónlistarflutning, streymi, upptökur og fjölbreytta viðburði.
Við breytingarnar var hljóðkerfi salarins endurnýjað og nýtt ljósakerfi tekið í notkun. Þá var settur upp búnaður til upptöku á bæði hljóði og mynd og nýju sviði komið fyrir. Með þessu skapast auknir möguleikar á að nýta Skriðu fyrir tónleika og fjölbreytta viðburði samhliða hefðbundinni notkun sem fyrirlestrarsal. Uppfærslan styður vel við áherslur Listaháskóla Íslands um fjölbreytta og skapandi kennsluhætti og námsumhverfi þar sem listsköpun og þverfaglegar tengingar eru í forgrunni.
Fyrsti tónlistarflutningurinn eftir breytingar
Í dag, 13. nóvember 2026, fór svo fyrsti tónlistarflutningurinn fram í Skriðu eftir breytingarnar. Það voru þau Páll Ragnar Pálsson, tónskáld og fagstjóri við tónlistardeild LHÍ og Tui Hirv, tónlistarfræðingur og stundakennari við LHÍ, sem fluttu þjóðlög frá Eistlandi, Bretlandi og Norðurlöndunum og þar með fékk Skriða formlega nýtt hlutverk sem vettvangur lifandi tónlistar. Salurinn bætist þannig við þá innviði Listaháskólans sem geta komið til móts við ólíkar þarfir kennslu og listsköpunar. Við þökkum Páli Ragnari og Tui kærlega fyrir tónlistarflutninginn sem hefur aldrei hljómar betur í Skriðu.


