Sýningin Eftir á að hyggja eftir Katrínu Maríu Káradóttur, prófessor í fatahönnun við Listaháskóla Íslands, er opin um þessar mundir í Beitunni á Akranesi. Þar lítur Katrín um öxl og dregur fram afrakstur rannsókna sinna á sjávarleðri, um leið og hún leitar nýrra leiða til framtíðar.

Í tengslum við rannsóknina vann Katrín fjölmargar tilraunir með sjávarleður. Hún rannsakaði meðal annars sútun fiskroðs, litaði það með náttúrulegum litarefnum, meðhöndlaði með náttúrulegum olíum, saumaði í efnið og blandaði því saman við annan textíl. Vinnan byggði jafnframt á rannsóknum hennar á menningararfi og handverkshefðum tengdum nýtingu fiskroðs á norðurslóðum.

Í Eftir á að hyggja eru þessar rannsóknir og tilraunir teknar áfram og settar í samtímalegt samhengi. Sýningin er í senn uppgjör við rannsóknarferlið og leit að því hvert hægt sé að halda næst. Á sýningunni eru prufur og flíkur unnar úr jurtalituðu sjávarleðri ásamt innsýn í rannsóknar- og hönnunarferlið að baki þeim.

Rannsóknin heldur áfram eftir að sýningunni lýkur. Katrín hyggst meðal annars klæðast flíkum sem litaðar hafa verið með náttúrulegum litarefnum og skrásetja hvernig þær eldast og breytast með tímanum. Þannig verður tíminn sjálfur hluti af rannsókninni og flíkurnar gætu síðar orðið rannsóknargripir á nýrri sýningu.

Að elta skinnið ofan í hafið

,, Fær sjávarleður í fangið. Hvað á að gera við þetta? Hmmm… leyfir því að fljóta og byrjar að elta það. Eltir það ofan í hafið, finnur þarann, hittir fiskana, finnur samfélag kvenna í hafinu til að synda með í gegnum lífið. Lærir að elska hafið. Eltir sjávarleðrið svo inn í fortíðina og hittir þar handverksfólk víða að úr heiminum. Eltir það til Japan og hittir þar annað samfélag kvenna sem stinga sér ofan í hafið, kunna að anda eins og fiskar, sækja þar fjársjóði. Lærir að fríkafa, verða frjáls í hafinu og lífinu. Lærir að dvelja í natni, taka tíma, leyfa náttúrulegum ferlum að ráða ferðinni. Sér hvað gerist þegar sjórinn mætir skóginum, jörðinni, himninum. Smátt og smátt sest hafið að í líkamanum. Lærir að skynja meira og hlusta betur á hafið í líkamanum, náttúruna í sjálfinu, í ferlinu. Hafið, handverkið, sagan, ferlið allt frá því Katrín María fékk sjávarleðrið í hendurnar, sjáum við líkamnast í verkum hennar. Við finnum fyrir hafinu, fyrir samfélögum kvenna sem synda sterkar saman í straumnum, frjálsar, í friði með fjársjóðunum sem þær sækja í náttúruna. Við finnum styrk þeirra, heyrum þær rabba saman yfir handverkinu, heyrum í hafinu, heyrum hljóðin í hafinu taka á móti þeim þegar þær stinga sér til sunds, finnum lyktina af þaranum, finnum hreyfingar fiskanna synda í straumnum.“

Texti um sýningu eftir Guðbjörgu R. Jóhannesdóttur nýdoktor við Heimspekistofnun Háskóla Íslands og lektor við Listaháskóla Íslands.

 

Sýningin er unnin í samstarfi við Breið nýsköpunarsetur, Nordic Fish Leather og Listaháskóla Íslands.

Sýnt er í Beitunni, Breiðargötu 2b, Akranesi. Sýningu lýkur sunnudaginn 11. október 2026, opið er alla daga frá 14 – 17.

Sýningarstjóri: Sigmundur Páll Freysteinsson