Viðburðurinn Birki í menningu, listum og lífinu verður haldið á Kolsstöðum í Hvítársíðu laugardaginn 17. október kl. 14-17.

Viðburðurinn er haldinn á vegum rannsóknarverkefnisins BirkiVist: Endurheimt birkivistkerfa á 21.öld þar sem m.a. var rýnt í samfélagslegt, menningarlegt og fagurferðilegt gildi birkis. BirkiVist er samstarfsverkefni HÍ, LbHÍ, LHÍ, Skógræktarinnar og Landgræðslunnar.

Af þessu tilefni opnar Páll frá Húsafelli sýningu á birkimálverkum sínum og leikur á birkiflautur, auk þess sem fleiri lista- og fræðimenn munu fjalla um birkið í tali og tónum.

Boðið verður upp á veitingar í kaffihléi og öll eru hjartanlega velkomin.

Einnig mun Steinunn Knúts Önnudóttir bjóða upp á skógarbað á undan málþinginu, frá 12.45-13.45, en til að staðfesta þátttöku í skógarbaðinu þarf að skrá sig í gegnum netfangið fallegt@fallegt.com.

Dagskráin:
14-14.10: Opnun og kynning á bókinni BirkiVist-BirkiVera: Birki í menningu, listum og lífinu – Guðbjörg R. Jóhannesdóttir og Auður Aðalsteinsdóttir
14.10-14.20: Jófríður Ákadóttir flytur lög sem tengjast birkitrjám
14.20-14.35: Fagurferðilegt gildi birkiskóga – Edda R.H. Waage og Guðbjörg R. Jóhannesdóttir
14.35-15: Tengslin við birkið – Páll frá Húsafelli sýnir málverk af birki og leikur á birkiflautur ásamt Berglindi Maríu Tómasdóttur
15-15.30: Kaffihlé
15.30-15.45: Þar sem birkið og fjalldrapinn grær: að eiga sér dvalarstað í íslenskum birkiskógi – Sólrún Una Þorláksdóttir
15.45-16: Að hlusta á trén – Hildur Hákonardóttir
16 -16.15: Rætur þrautseigju – Ásthildur B. Jónsdóttir
16.15-16.30: BirkiVist-BirkiVera og endurheimt – Ása L. Aradóttir, Kristín Svavarsdóttir og Þóra Ellen Þórhallsdóttir
16.30-17: Auður Aðalsteinsdóttir stýrir umræðum

Um BirkiVist

BirkiVist er þverfræðilegt rannsókna- og þróunarverkefni er miðar að þróun skilvirkra leiða við endurheimt birkiskóga á landsvísu. Í verkefninu eru greindar helstu hindranir og tækifæri fyrir náttúrulegt landnám birkis og hvernig samfélagslegir þættir hvetja eða letja endurheimt. Einnig eru metin ávinningur og afleiðingar endurheimtarinnar fyrir kolefnisbindingu, vatnsbúskap, líffræðilega fjölbreytni, landslag og fagurferði, auk þýðingar birkis í listum og menningu. Nánari upplýsingar er að finna here.