Arkitektafélag Íslands færði Arkitektúrdeild Listaháskóla Íslands veglega bókagjöf föstudaginn 9. október. Um er að ræða 130 eintök af bókinni Leiðsögn um íslenska byggingarlist, sem ætluð eru nemendum deildarinnar til fróðleiks og innblásturs.
Arkitektafélag Íslands gaf út bókina Leiðsögn um íslenska byggingarlist í tilefni þess að Reykjavík var tilnefnd sem ein af níu menningarborgum Evrópu árið 2000. Í ritinu er fjallað um um 250 verk sem endurspegla fjölbreytni og grósku íslenskrar byggingarlistar.
Dennis Davíð Jóhannesson sem að ritstýrði bókinni, afhenti bókagjöfina fyrir hönd Arkitektafélags Íslands. Massimo Santanicchia, deildarforseti Arkitektúrdeildar, tók við gjöfinni fyrir hönd deildarinnar.

Dýrmæt gjöf fyrir nemendur

Massimo Santanicchia þakkaði Arkitektafélagi Íslands fyrir gjöfina og sagði hana skapa dýrmætt tækifæri fyrir nemendur til að kynnast íslenskri byggingarlist:
„Fyrir hönd Arkitektúrdeildar Listaháskóla Íslands vil ég færa Arkitektafélagi Íslands innilegar þakkir fyrir rausnarlega gjöf á 130 eintökum af bókinni Leiðsögn um íslenska byggingarlist. Sérstakar þakkir fær Dennis Davíð Jóhannesson, ritstjóri bókarinnar.
Þessi góða gjöf veitir nemendum okkar dýrmætt tækifæri til að kynnast ríkidæmi og fjölbreytni íslenskrar byggingarlistar og dýpka skilning sinn á hinu byggða umhverfi. Bókin verður þeim uppspretta fróðleiks og innblásturs í námi og starfi.
Við kunnum afar vel að meta þennan stuðning við nemendur okkar og þann hlýhug sem gjöfin ber vott um. Hún er jafnframt fallegur vitnisburður um tengslin milli arkitektúrmenntunar og starfandi arkitekta.“