Fyrsti gestur ársins 2019 í röð Umræðuþráða er Dr. Dorothee Richter. Fyrirlesturinn fer fram á ensku og ber heitið Artistic and Curatorial Turns, Care and Accelerated Capitalism. From the Sixties to Contemporary Practices in Feminist Perspectives. A Tour de Force.

Dr Dorothee Richter er prófessor í samtíma sýningarstjórnun. Frá árinu 2005 hefur hún verið yfir framhaldsnáminu í sýningarstjórnun (MAS/CAS), www.curating.org, í Listaháskólanum í Zurich (ZHdK). Hún stofnaði einnig  „PhD in practice in curating” sem er samstarfsverkefni framhaldsnámsins í sýningarstjórnun og myndlistardeildar Háskólans í Reading, en verkefnið er fjármagnað af Swissuniversities. Hún gegnir einnig stöðu prófessors í Háskólanum í Reading í Bretlandi. Frá árinu 1999 til ársloka 2003 var Richter listrænn stjórnandi Künstlerhaus Bremen, þar sem hún stóð fyrir gagnrýninni sýningardagsrá byggðri á feminískum viðfangsefnum, þéttbýlisaðstæðum, valdatengdum viðfangsefnum og stofnanagagnrýni. Hún starfar enn sem sýningarstjóri. Nokkur af sýningarverkefnum hennar eru: New Social Sculptures at Kunstmuseum Thun, (2012) Speculative Curating, Performative Interventions, Migros Museum, Zürich (2016/17), þessa stundina stýrir hún einnig verkefnarýminu OnCurating (http://oncurating-space.org/). Hún er ritstjóri www.OnCurating.org, sem er tímarit, gefið út á netinu og í prenti, sem fjallar um sýningarstjórnun og kenningar hennar. Í doktorsnámi sínu fjallaði Richter um Flúxus list, “Fluxus: Art – Synonymous with Life? Myths about Authorship, Production, Gender and Community”. Árið 2013 kom út mynd sem hún gerði ásamt Ronald Kolb: Flux Us Now! Fluxus explored with a camera, sem var frumsýnd í Staatsgalerie í Stuttgart sama ár, í Migros safninu í Zurich, og í ýmsum Evrópskum listaháskólum og söfnum, sjá www.fluxusnow.net.

Umræðuþræðir er samstarfsverkefni Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar, Listaháskóla Íslands, og Listasafns Reykjavíkur. Í tengslum við verkefnið hefur allt frá árinu 2012 verið boðið hingað til lands fólki sem nýtur viðurkenningar í hinum alþjóðlega listheimi, ýmist á sviði listsköpunar, fræðastarfa eða sýningarstjórnunar. Lagt hefur verið upp með að skapa vettvang hérlendis fyrir alþjóðleg tengsl og umræður; gestirnir kynnast íslensku listalífi, stunda gestakennslu um leið og þau kynna eigin verk og hugðarefni opinberlega. Fyrirlestrar fara fram á ensku og eru öllum opnir í boði Listasafns Reykjavíkur, Kynningarmiðstöðvar íslenskrar myndlistar og Listaháskóla Íslands í góðu samstarfi við Goethe stofnunina.

Facebook viðburður