Uppskeruhátíð verkefnisins Training Artists Without Borders 2016 - 2018.

Training Artists Without Borders er samstarfsverkefni nokkurra evrópskra menningarstofnana og listaháskóla en þau eru:

 

Í málstofu sem haldin verður í tónlistardeild LHÍ, Skipholti 31, föstudaginn 30. nóvember milli 15 og 17 verður afraksturinn af þessu tilraunaverkefni kynntur. Öll hjartanlega velkomin.

Nánar:

Sífellt fleiri listamenn vinna þvert á listgreinar og þverfaglegar áherslur í listnámi verða að sama skapi æ mikilvægari. Á sama tíma hefur stafrænt umhverfi og ný þekking getið af sér nýjar leiðir til miðlunar og listnáms.

Undanfarin tvö ár (frá september 2016 - september 2018) hafa listamenn frá öllum heimshornum hist með reglulegu millibili með það að markmiði að þróa leiðir og þekkingu til að byggja upp listnám sem tekst á við þennan breytta veruleika. Innan verkefnisins Training Artists Without Borders (Listnám án landamæra) tókust þrír hópar á við þrjú ólík en þó náskyld viðfangsefni; þverfaglega samvinnu í listnámi, leiðsagnarnám (mentoring), og nám í stafrænu umhverfi.

Rannsóknarleiðangurinn, sem átti sér meðal annars stað í Groningen í Hollandi), Visby í Gotlandi, Hafnarfirði og Zeerjip í Hollandi, gat af sér ótal innblásandi tilraunir, knýjandi spurningar og (nokkur) svör sem tekist verður á við í málstofu í Skipholti 31. 

Þátttakendur í málstofu:

  • Alexander Roberts, fagstjóri meistaranáms við sviðslistadeild LHÍ
  • Berglind María Tómasdóttir, dósent við tónlistardeild LHÍ
  • Fríða Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands
  • Sigurður Halldórsson, prófessor og fagstjóri NAIP (New Audience, Innovative Practice) við LHÍ.
  • Tryggvi M. Baldvinsson, deildarforseti tónlistardeildar LHÍ
  • Þorgerður Edda Hall, verkefnastjóri alþjóðasviðs LHÍ
  • Þóra Einarsdóttir, prófessor og fagstjóri söngbrautar tónlistardeildar LHÍ
  • Nemendur úr NAIP (New Audiences and Innovative Practice) við tónlistardeild og úr sviðslistadeild LHÍ. 
  • Málstofustjóri: Elísabet Indra Ragnarsdóttir

Verkefnið er styrkt af Erasmus+ áætluninni

Öll hjartanlega velkomin.