Bergþóra Ægisdóttir, Snæfríður María Björnsdóttir nemendur við söngdeild og Edda Björk Jónsdóttir nemandi í skapandi tónlistarmiðlun við Listaháskóla Íslands, halda söngtónleika laugardaginn 25.11. kl 16:00.
Meðleikari er Selma Guðmundsdóttir.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!

Skammdegistónleikaröð tónlistardeildar er yfirheiti nemendatónleika í lok haustannar. Tónleikaröðin hófst með tónleikum í Hallgrímskirkju liðna helgi þar sem kór og hljóðfæranemendur skólans komu fram.
Nú taka við einleiks- og kammertónleikar nemenda og standa þeir samfellt yfir á tímabilinu 25.nóvember til 11.desember.
Aðgangur er ókeypis og öllum opinn!