Sláðu inn leitarorð
Ómkvörnin 2021
17.05.2021 - 20:00 til 21.05.2021 - 22:00
Kaldalón, Harpa og Sundlaugin Álafossi
Ómkvörnin, uppskeruhátíð tónsmíðanema Listaháskóla Íslands, fer fram dagana 17. og 21.maí.
Á hátíðinni eru verk eftir upprennandi tónskáldin frumflutt en þau eru eins fjölbreytt og þau eru mörg, allt frá klassískum hljóðfæratónsmíðum yfir í nýstárlega raftónlist.
Dagskrá Ómkvarnarinnar og skráning á viðburðina má finna hér að neðan.