INNGILDING Í ORÐUM OG AURUM
Þriðji viðburður ÖLLUM TIL HEILLA samtals um samfélagslistir
27. apríl kl. 12:00-13:00 (og umræður þar á eftir).
Streymi verður hér (íslenska, enskur texti). Táknmálstúlkuð útgáfa mun birtast hér (undir Upptökur/Recordings).
Á fundinum verður fjallað um inngildingaráherslur í þremur nýsamþykktum menningarstefnum hérlendis en einnig hlustað á raddir samfélagslistafólks.
Miriam Petra Ómarsdóttir Awad, sérfræðingur hjá Rannís:
Inngilding í Erasmus+: Áhersluatriði áætlunarinnar og mótun inngildingarstefnu landskrifstofu.
Pálína Jónsdóttir, stofnandi og listrænn stjórnandi Heimsleikhússins Reykjavík Ensemble.
Erfiðleikar við fjármögnun samfélagslistaverkefna
Signý Leifsdóttir, verkefnastjóri stefnumótunar og innleiðingar á menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar:
Aðgengi og inngilding í menningu og listum í Reykjavík – hvernig og hvers vegna?
Martyna Karolina Daniel, myndlistarkona og sérfræðingur um fjölmenningu hjá Reykjavíkurborg
Tungumálahindranir
Hildur Jörundsdóttir, sérfræðingur í menningar- og viðskiptaráðuneytinu:
Menningarsókn!
Magnea Tómasdóttir, söngkona og sérfræðingur í notkun tónlistar í vinnu með fólki með heilabilun
Hindranir í listrænni vinnu við heilbrigðisstofnanir
Gestgjafar: Erling Jóhannesson, forseti Bandalags íslenskra listamanna og Björg Árnadóttir, ReykjavíkurAkademíunni.
Velkomin í facebook-hóp ÖLLUM TIL HEILLA
Kynningarmynd í viðhengi
The ReykjavíkAcademy: