Minningar morgundagsins í Listasafni Reykjanesbæjar 12. mars – 24. apríl 2022

Meistaranemar á fyrsta ári í sýningagerð við Listaháskóla Íslands opna sýninguna Minningar morgundagsins í Listasafni Reykjanesbæjar, laugardaginn 12. mars nk. Þetta verður í annað sinn sem MA í sýningagerð vinnur með Listasafni Reykjanesbæjar að sýningarverkefni í safninu. Meistaranemarnir og sýningarstjórarnir eru Iona Poldervaart, Sara Blöndal og Sunna Dagsdóttir. Sex listamenn taka þátt í sýningunni að þessu sinni; Elnaz Mansouri, Hallgerður Hallgrímsdóttir, Sarah Degenhardt, Sarah Finkle, Victoria Björk og Vikram Pradhan. 

Sýningin Minningar morgundagsins er hópsýning sem setur fókusinn á framtíðina og tengslin við sögur, umhverfi og drauma okkar. 
Minningar eru sögur fortíðarinnar og á hverjum degi sköpum við frásagnir sem breytast í minningar framtíðarinnar. Tækniframfarir síðustu ára hafa nú í enn meiri mæli áhrif á daglegt líf. Með sýningunni vilja sýningarstjórarnir varpa ljósi á það hvernig lífið gæti orðið í framtíðinni og velta vöngum yfir möguleikum nýrrar heimsmyndar. Þær varpa fram spurningum um tilgang allsnægta, mennskunnar og hvað teljist til lífs; höfum við stjórn á framtíð okkar - draumum okkar - nútímanum? Hvernig mótum við frásagnir okkar og hvernig tökumst við á við umhverfið? Hvernig upplifum við tíma og rúm? Getum við deilt rými til að dreyma? Hvernig munum við búa á morgun og hvers munum við minnast þegar við lítum til baka í framtíðinni? 
 

Meistaranám í sýningagerð er ný námsleið í myndlistardeild Listaháskóla Íslands sem kennsla hófst við haustið 2020. Þar er litið á sýningagerð sem sjálfstæða skapandi grein og fræðigrein, sem einskorðast ekki við myndlist heldur einnig sem leið til að stofna til samtals við önnur svið kunnáttu og sérfræðiþekkingar. Hanna Styrmisdóttir er prófessor við námsleiðina.

Sýningin mun standa til 24. apríl 2022.