Sláðu inn leitarorð
Masterclassar með ítalska píanistanum Pina Napolitano
22.10.2019 - 13:00 til 23.10.2019 - 19:30
Skipholt 31, Flyglasalur
Ítalski píanistinn Pina Napolitano mun halda tvo masterclassa dagana 22. og 23.október.
Napolitano er fædd og uppalin í Caserta á Ítalíu. Hún hóf nám í píanóleik aðeins 4 ára gömul hjá Guisi Ambrifi.
Hún hefur hlotið mastersgráðu í píanóleik frá The Music Academy of Pescara með sérstaka áherslu á tónlist 20.aldarinnar og hefur nú kennt í virtum tónlistarháskólum á Ítalíu.
Masterclassarnir fara fram í húsnæði tónlistardeildar Listaháskóla Íslands, Skipholti 31 í flyglasalnum á 3. hæð.
Tímasetningar eru eftirfarandi //
- Þriðjudaginn 22. október kl. 13:00 - 17:00
- Miðvikudaginn 23. október kl. 15:30 - 19:30
Píanónemendur LHÍ leika verk eftir Mozart, Beethoven, Schumann, Debussy ofl.
Allir velkomnir að hlusta á kennsluna.