Athöfn, útskriftarsýning Meistaranema í Myndlist frá Listaháskóla Íslands opnar laugardaginn 14. maí kl. 14–16 í Nýlistasafninu. Verið öll hjartanlega velkomin! 

Útskriftarnemendur MA í myndlist árið 2023 eru:

  • Deepa R. Iyenger
  • Íris María Leifsdóttir
  • Júlíanna Ósk Hafberg
  • Jóhanna Margrétardóttir
  • Sarah Finkle
  • Sólveig Pálsdóttir 
  • Thora Karlsdóttir. 

Í gegnum eigin viðfangsefni leitast þær við að þoka mörkunum örlítið lengra: mörkum hegðunar, persónulegs rýmis, reynslu og tilfinninga. Mörkum umhyggju, skipaðra hlutverka og samvistar manns og náttúru. Mörkum þess hversu langt við getum hugsað út fyrir tímann og inn í okkur sjálf. Listamennirnir sækja í þræði frá nýlegum einkasýningum sem taka á sig ný form í  öðru samhengi. 

Það er alltaf kliður í kringum okkur. Ekki bara eitthvað ómerkilegt suð heldur rafmögnuð spenna sem hefur áhrif á líkama og krefst athygli. Í dag skiptir sífellt meira máli að halda þræði á fullri ferð áfram: forgangsraða, sía frá, finna reglu í óreglunni, merkingu í skjálfandanum, endurskipuleggja — eða hreinlega bara líta undan. Útskriftarsýningin tekur sér stöðu á tímum þar sem aðgerðir mæta doða og afstaða mætir undankomuleiðum. Með verkunum kanna listamennirnir leiðir í gegnum þessa póla og bregðast við umhverfi sínu og samhengi, hver á sinn hátt, með verkum sem kalla á viðbragð og næmni. 
Sýningastjóri er Sunna Ástþórsdóttir

Sýningin stendur til 4. júní og er opin miðvikudaga–sunnudaga frá kl. 12–18. Viðburðadagskrá:

 
⚫️ Sunnudagur, 21. maí:
Kl. 15: Listamannaspjall með Sarah Finkle og Solveigu Pálsdóttur
Tungumál: Enska
⚫️ Fimmtudagur 25. maí:
kl. 20:00: Listamannaspjall með Jóhönnu Margrétardóttur, Júlíönnu Ósk Hafberg og Thoru Karlsdóttir
Tungumál: tekur mið af þeim sem mæta, fer fram annaðhvort á íslensku eða ensku.
⚫️ Sunnudagur 28. maí
Kl. 15: Listamannaspjall með Íris Maríu Leifsdóttur, Deepa R. Iyengar
Tungumál: Enska