Verið velkomin á opnun Lífsleikni, með verkum eftir Dýrfinnu Benitu Basalan í Listval laugardaginn 23. april frá kl. 16-18. Sýningin er jafnframt útskriftarverkefni Bjarkar Hrafnsdóttur sem er að ljúka meistaranámi í sýningagerð við Listaháskóla Íslands. 

Innblástur sýningarinnar fannst í skólastofunni, gömlum stílabókum og barnabókmenntum. Á sýningunni lítur Dýrfinna til baka á æskuna og tilfinningarnar sem fylgja því að sitja fastur í skólakerfi, dagdreyma og þrá frelsi. Við fylgjum samt kerfinu og bíðum spennt eftir sumarfríinu, frelsinu, en eftir skólann tekur við ískaldur raunveruleikinn sem jafnast ekki á við ævintýralegu dagdraumana. Við lítum aftur á þessi augnablik sem höfðu svo gríðarlega mikil áhrif á mörg okkar. Með verkum sínum hleypir Dýrfinna okkur inn í draumkennda minningu þar sem kunnuglegir hlutir taka á sig örlítið skringilegri mynd. Hugmyndir Dýrfinnu hlutgerast í málverk, teikningar og skúlptúra úr stáli og við. Gestir sýningarinnar eru þátttakendur og geta speglað minningar sínar í verkunum og mögulega séð sitt eigið ferðalag í nýju ljósi.
Undirbúningur sýningarinnar einkenndist af nánu samstarfi þeirra sem að henni komu. Sérstaklega má nefna samtal og skapandi samvinnu Dýrfinnu og Steinars Ingólfssonar. 

Grafísk hönnun og listrænt samstarf: Steinarr Ingólfsson

 

bjork_fyrir_netid_.jpeg

 

Björk Hrafnsdóttir (f.1993) ólst upp í Reykjavík og er með BA gráðu í listfræði frá Háskóla Íslands og Sorbonne IV í Frakklandi. Hún er að ljúka meistaranámi í sýningargerð við Listaháskóla Íslands þar sem hún rannsakar áhrif persónulegrar reynslu listamanna á verk þeirra, feminísk fræði og sýningar-aktivisma. Megináhersla Bjarkar er á náið samstarf milli hennar og þeirra listamanna sem hún vinnur með.

Dýrfinna Benita Basalan (f.1992), einnig þekkt undir listamannsnafninu Countess Malaise, er fædd og uppalin á Íslandi. Árið 2018 útskrifaðist hún frá Gerrit Rietveld Academie með B.A. gráðu í myndlist og hönnun og hefur starfað síðastliðin ár sem myndlistarkona á fleiri en einum vettvangi. Hún dregur myndheim sinn ýmist úr jaðar kúltúrum, manga, hinsegin menningu sem og af persónulegri reynslu sinni sem einstaklingur með fjölbreyttan menningarbakgrunn. Dýrfinna er einn þriggja meðlima Lucky 3 hópsins ásamt Melanie Ubaldo og Darren Mark, en hópurinn er handhafi hvatningarverðlauna Myndlistarráðs 2022.

 

Steinarr Ingólfsson (f. 1993) er fæddur og uppalinn í Reykjavík. Hann útskrifaðist frá Gerrit Rietveld Academie í Amsterdam með B.A. gráðu í myndlist og hönnun árið 2017. Síðan þá hefur hann starfað sem grafískur hönnuður fyrir hin ýmsu menningarframtök, listhópa og tískumerki. Steinarr hefur aðsetur í París þar sem hann hefur starfað sem prent- og vöruhönnuður fyrir tískumerkið Balenciaga frá 2019.

 

Opnunartímar:

Laug. 23. apríl: 16-18
Sun. 24. apríl: 12-16
Mán. 25. apríl: Lokað
Þrið. 26. apríl: Lokað
Mið. 27. apríl: 12-16
Fim. 28. apríl: 12-16
Fös. 29. apríl: 12-16
Laug. 30. apríl: 12-16

Björk verður með sýningarstjóraspjall laugardaginn 30. apríl kl. 14:00