Við bjóðum allt áhugasamt fólk velkomið á fjarkynningu mánudaginn 12. apríl, kl. 12.30-13. 

 

Beint streymi á: live.lhi.is

 
HVAÐ VILTU VITA? 
Fyrir hvern er nám i listkennsludeild?
Hvað læri ég?
Hvar get ég farið að vinna að námi loknu? 
Af hverju ætti ég að velja LHÍ? 
Get ég stundað námið með vinnu?
Get ég verið í hálfu námi / breytilegum einingafjölda á námstímanum?
Eru gerðar undantekningar á inntökuskilyrðum?
Hef ég aðgang að verkstæðum í LHÍ?
 
Þessum spurningum og fleirum verður svarað í fjarkynningunni. Hægt verður að senda inn spurningar á meðan kynningu stendur en einnig er hægt að skrifa spurningar í athugasemd í viðburðinn fyrirfram. 
 
 
Inntak námsins miðar að því að þjálfa leiðtogafærni í kennslu þar sem fólk vinnur saman og samhliða að kennslufræðilegum úrlausnarefnum bæði innan veggja LHÍ og einnig úti á fagvettvangi. Námið er nemendamiðað og lýkur með meistaragráðu. 
 
Nemendur útskrifast með leyfisbréf til kennslu á öllum skólastigum; leik- grunn- og framhaldsskóla. 
 
Nemendur sem útskrifast með kennsluréttindi fram til ársins 2024 eiga möguleika á styrk frá Mennta- og Menningamálaráðuneytinu. Sjá nánar um styrkveitingu hér.
 
Umsóknarfrestur er til 17. maí 2021.
Um kennaranám í LHÍ
Listkennsludeild Listaháskóla Íslands býður upp á fjórar námsleiðir
 
Meistaranám í listkennslufræðum- Fyrir fólk með bakkalárgráðu í listgrein. 
Hér er mikill þverfagleiki þar sem saman kemur hópur fólks úr öllum listgreinum sem hefur það að takmarki að fræðast um og tileinka sér nýjar aðferðir við listkennslu með sem víðtækustum samfélagslegum og hugmyndafræðilegum skírskotunum.
 
Meistaranám í kennslufræðum- NÝ NÁMSLEIÐ, fyrir fólk með bakkalárgráðu í öðru en listgreinum.
 
Með nýrri námsbraut er markmiðið að efla aðferðafræði og hlut lista enn frekar í almennu skólastarfi. Með því að opna á nám fyrir fólk með bakkalárgráðu í öðrum greinum, sem hefur áhuga og einhverja þekkingu á aðferðum lista, er byggð brú milli ólíkra greina og fagsviða. Með þessu vill Listaháskólinn skila fleiri vel menntuðum kennurum út í samfélagið sem eru forustuafl skapandi greina. 
 
Meistaranám í listkennslu með aðfararnámi- Fyrir fólk sem hefur lokið amk 120 einingum á bakkalárstigi.
 
Diplóma í listkennslufræðum- Eins árs 60 eininga nám til kennsluréttinda fyrir þau sem hafa meistaragráðu í listgrein.
 
 
Tónlistardeild Listaháskóla Íslands býður upp á meistaranám í söng- og hljóðfærakennslu
Brautin er ætluð þeim sem lokið hafa bakkalárgráðu eða sambærilegu námi í tónlist. Námið er einnig tilvalin leið fyrir tónlistarkennara sem vilja bæta við þekkingu sína og færni í kennarastarfinu.
Einnig býður tónlistardeild upp á nám í rytmískri og klassískri söng- og hljóðfærakennslu á bakklárstigi.