Nemendur í Listaháskóla Íslands sýna afrakstur úr hljóðlistakúrsinum Hljóð sem efniviður.

Á laugardaginn 23. febrúar milli 15-17 mun hópur nemenda myndlistardeildar Listaháskóla Íslands standa fyrir tímabundnu inngripi í yfirstandandi sýningu Hafnarborgar, Hljóðön - sýningu tónlistar.

Hópurinn hefur síðustu fimm vikur kannað hljóð sem efnivið en þessi "pop-up-sýning" sýnir afrakstur þeirrar vinnu. Nemendur bjóða m.a. upp á innsetningar, upptökuverk, gjörninga, skúlptúra, afspilunarverk og þátttökuverk sem öll sem hverfast að einhverju leiti um hljóð.

Þátttakendur:

Alexander Hugo Gunnarsson
Brák Jónsdóttir
Clara Mosconi
Erla Daníelsdóttir
Gunnhildur Halla Ármannsdóttir
Hrafnkell Tumi Georgsson
Högna Heiðbjört Jónsdóttir
Katrín Björg Gunnarsdóttir
Klemens Hannigan
Kristín Einarsdóttir
Luke van Gelderen
Marí Dúfa Sævarsdóttir
Ronja Mogensen
Styrmir Hrafn Daníelsson

Kennari kúrsins er Curver Thoroddsen.
Sýningarstjóri Hljóðanar er Þráinn Hjálmarsson.
Sérstakir gestir í kúrsinum voru Einar Örn Benediktsson, Þóranna Björnsdóttir og Logi Leó Gunnarsson.