Hádegisfyrirlestur föstudaginn 5.mars kl.13:00
Fyrirlestrarsalur, Laugarnesvegi 91

Myndlistarkonan Una Björg Magnúsdóttir fjallar um feril sinn og aðferðir í myndlist.
A.T.H. Viðburðurinn er einungis opinn nemendur LHÍ en áhugasamir geta nálgast beint streymi hér: https://zoom.us/j/99323500561

screenshot_2021-03-04_at_10.16.16.png
 

Una Björg lauk B.A.-gráðu í myndlist við Listaháskóla Íslands 2014 og stundaði síðar M.A. nám í myndlist við École cantonale d’art de Lausanne í Sviss, þaðan sem hún útskrifaðist 2018. Una Björg hefur verið virk á sýningarvettvangi hérlendis frá því að hún lauk námi, hlotið styrki, listamannalaun og átt frumkvæði að áhugaverðum samsýningum og uppákomum á myndlistarsviðinu.
Una Björg vinnur með ýmsa muni og uppstillingar í verkum sínum sem oft á tíðum eru hreyfanleg eða gefa frá sér hljóð. Hið ofurkunnulega birtist oft í innsetningum hennar, skúlptúrískum sviðsetningum og myndverkum, um leið og afbygging á sér stað er ögrar og afhjúpar.