EITT ÞAK, TAKK! - Gjörningakvöld

Nemendafélög Myndlistardeildar og Sviðslistadeildar standa fyrir gjörningakvöldi fimmtudagskvöldið 19. október kl. 20.00 til að vekja athygli á málefnum Listaháskólans í ljósi komandi kosninga. 

22449932_10159164922348125_1204838472465897579_n.jpg
 

Húsnæðismál Listaháskólans hafa lengi verið í ólestri: Skólinn er í dag rekinn á fimm mismunandi stöðum, aðgengi fatlaðra er lélegt eða ekki til staðar í byggingum skólans og var tveimur hæðum byggingarinnar við Sölvhólsgötu lokað af Heilbrigðiseftirlitinu í vor vegna þess að rýmin voru gegnsýrð af myglu. 

Eins eru öll hús skólans nema Lauganes leigð á tímabundnum leigusamningum, og erum við því í kapphlaupi við tímann að koma skólanum öllum í Lauganes áður en fyrstu leigusamningarnir renna út árið 2022.

#undireinuþaki2022

Gjörningarnir munu taka á stefnumálum Jafnréttisdaga LÍS, sem eru aðgengi fatlaðra, fjárhagslegt aðgengi, skert fjármagn og húsnæðismál háskólanna með myllumerkinu: 

#kjóstumenntun

Gjörningakvöldið fer fram í Smiðjunni, Sölvhólsgötu 13 (gengið inn að aftan) og hefst kl. 20.00. Frítt inn! 

Allir hjartanlega velkomnir!

Facebook viðburður hér