Einkasýning Þórunnar Dísar Halldórsdóttur opnar 24. nóvember kl. 17:00 – 18:00 í Kubbnum, Laugarnesvegi 91. Sýningin er í röð einkasýninga nemenda á 3. ári í myndlist.

ATH vegna núverandi ástands verður sýningin aðeins aðgengileg almenningi í gegnum beint streymi á vefnum kl. 17:45 sem nálgast má HÉR.

Nokkurskonar heimildartaka,
það er hljóð en það heyrist ekki,
ég geri eitthvað en er efins.

Sýning sem saman stendur af þremur videoverkum sem heita:

Til staðar í duldu eða varla greinanlegu ástandi, samt sem áður ógnandi

Of seint að hvísla af hverju

Án titils

Á tímabilinu 1. október - 26. nóvember stendur yfir röð einkasýninga BA nemenda á 3. ári í myndlist, alls 24 sýningar.

Í hverri viku opna í senn þrjár einkasýningar á mismunandi sýningarstöðum í Listaháskólanum í Laugarnesi; í Kubbnum á 2. hæð, í Naflanum sem er inni í miðju skólans á 1. hæð og í Huldulandi sem staðsett er norðanmegin á 1. hæð.

Facebook viðburður / Allar einkasýningar 3. árs nema í myndlist