Einkasýning Sigríðar Erlu Jóhönnudóttir opnar fimmtudaginn 22. nóvember kl. 17:00 – 19:00 í Huldulandi, Laugarnesvegi 91. Sýningin er í röð einkasýninga nemenda á 3. ári í myndlist.

Kramið

Kramið er fyrsta einkasýning Sigríðar Erlu Jóhönnudóttur. Í sýningunni er farið í gegnum ferlið við mótun og gerð verkanna sem eru öll unnin úr plasti. Mætti segja að þessi efniviður fái annað hlutverk í gegnum verk Siddýar. Þar sem hún hreinsar umhverfið með því að taka plastið og endurmóta það í formi grafík mynda og prenti.

Á tímabilinu 4. október - 29. nóvember stendur yfir röð einkasýninga nemenda á 3. ári í myndlist, alls 24 sýningar.

Á hverjum fimmtudegi frá 4. október - 29. nóvember opna í senn þrjár einkasýningar á mismunandi sýningarstöðum í Listaháskólanum í Laugarnesi; í Naflanum sem er inni í miðju skólans á 1. hæð, í Kubbnum á annari hæð og síðast en ekki síst í Huldulandi norðanmegin í húsinu á 1. hæð. Opnanir eru frá kl. 17 - 19 á fimmtudögum. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur. Kennarar ásamt Heklu eru Unnar Örn og Sindri Leifsson.

Facebook viðburðurAllar einkasýningar 3. árs nema í myndlist