Einkasýning Hörpu Dísar Hákonardóttur, Holrúm opnar fimmtudaginn 11. október kl. 17:00 – 19:00 í Huldulandi, Laugarnesvegi 91. Sýningin er í röð einkasýninga nemenda á 3. ári í myndlist.

Verkið Holrúm er skúlptúrinnsetning sem leikur sér með rými og rýmiskennd. Öllu er snúið við, kálgarðurinn, ílangur og pósitífur er fluttur inn í negatíft rýmið. Upphafning þess ósýnilega er í fyrirrúmi og spurningunni um mikilvægi massans er varpað fram. Verkið er minning sem átti sér stað, eitt spor aftur og aftur, fest í tíma og birtist nú í holdlegum skilningi.

Á tímabilinu 4. október - 29. nóvember stendur yfir röð einkasýninga nemenda á 3. ári í myndlist, alls 24 sýningar.

Á hverjum fimmtudegi frá 4. október - 29. nóvember opna í senn þrjár einkasýningar á mismunandi sýningarstöðum í Listaháskólanum í Laugarnesi; í Naflanum sem er inni í miðju skólans á 1. hæð, í Kubbnum á annari hæð og síðast en ekki síst í Huldulandi norðanmegin í húsinu á 1. hæð. Opnanir eru frá kl. 17 - 19 á fimmtudögum. Einkasýningar nemenda er liður í námskeiðinu Vinnustofur prófessora í umsjón Heklu Daggar Jónsdóttur. Kennarar ásamt Heklu eru Unnar Örn og Sindri Leifsson.

Facebook viðburðurAllar einkasýningar 3. árs nema í myndlist.