In the Midst of Things
Laugardaginn 12.mars kl.14:00 - 18:00.
RÝMD, Völvufell 13.

Einkasýning Auðar Aðalsteinsdóttur, In the midst of things, opnar laugardaginn 13. mars kl. 14:00 í Rýmd, nemendagalleríi Listaháskóla Íslands, Völvufelli 13. Sýningin er í röð einkasýninga MA útskriftarnema við meistaranám myndlistardeildar Listaháskóla Íslands vorið 2021.
Opnunartímar: alla daga 14.3-21.3 á milli 14-18

audur_minni.png
 

Röð einkasýninga meistaranema í myndlist vorið 2021

Sýningarnar eru hluti af lokaverkefnum nemenda og eru vettvangur þar sem tækifæri gefst til að láta reyna á eigin listrænu sýn og ákvarðanatöku innan ramma námsins. Lokaverkefnin eru þáttur í tveggja ára MA námi nemenda þar sem þeir hafa þróað áfram eigin aðferðir, rannsóknir og samhengi. Í vor verður svo einnig haldin útskriftarsamsýning í Nýlistasafninu í Marshallhúsinu.

Meistaragráðan í myndlist byggist á ofangreindum einkasýningum og gagnrýnum íhugunum varðandi þær, listaverki á samsýningunni í Nýlistasafninu, faglegum vinnubrögðum ásamt meistararitgerð þar sem fram koma aðferðir, efnisinntak, samhengi og greinargerð um lokaverk. Sýningarnar eru í Kubbnum, galleríi myndlistardeildar í Laugarnesi og RÝMD, nemendagallerí myndlistardeildar í Breiðholti.

Opnunartími sýninga

Kubburinn - miðvikudagur, fimmtudagur og föstudagur frá 13:00 – 17:00 í vikunni eftir opnun.
RÝMD -  alla daga frá 14:00 – 18:00 í vikunni eftir opnun.

Dagskrá:

26. febrúar: Brian Wyse – Kubburinn opnun kl. 17:00 - 19:00
27. febrúar: Romain Causel – RÝMD opnun kl. 17:00 - 19:00
12. mars: Helen Svava Helgadóttir – Kubburinn opnun kl. 17:00 - 19:00
13. mars: Auður Aðalsteinsdóttir – RÝMD opnun kl. 14:00 - 18:00