Föstudaginn 24. mars verður sýning sem opnar kl.19:00 í nýju húsnæði Góða Hirðisins að Köllunarklettsvegi 1. 

Sýningin er afrakstur verkstæðis sem Dagur Eggertsson arkitekt verður með hópi arkitektanema frá tækniháskólanum ETH í Zürich ogListaháskóla Íslands. Á verkstæðinu munu nemendurnir byggja innsetningar úr endurunnu efni frá Góða Hirðinumog Sorpu til að vekja athygli á nauðsyn þess að byggingariðnaðurinn og samfélag arkitekta fari að taka endurvinnslu byggingarefnis fastari tökum. Prófessor Jan De Vylder mun halda stuttan fyrirlestur við opnun sýningarinnar sem verður öllum opin.

Dagur Eggertsson hefur verið gestaprófessor við arkitektadeildListaháskólans síðustu tvö árin og hefur umsjón með lokaverkefni til BA prófs ásamt Hjördísi Sóley Sigurðardóttur. Þau hafa tekið sjálfbærni fyrir í kennslu sinni og í þessari samvinnu við ETH verða hugtök og þemu úr þeim efnisflokki tekin fyrir.

Jan De Vylder rekur arkitektastofuna Architecten Jan De Vylder Inge Vinck (AJDVIV) í Antwerpen ásamt eiginkonu sinni Inge Vinck. Jan og Inge hafa lengi verið í fremstu víglínu Belgískra hönnuða og hafa vakið athygli fyrir óháðtíðlega nálgun á arkitektúr þar sem ófullkomleiki mannlífs og byggðs umhverfis kemur saman. Það má kalla hann kontextúalista vegna áhuga hans á þeim lagskiptu upplýsingum sem felast í borgarumhverfi okkar, en hann hefur engu að síður gaman af að skapa þversagnir og „…small moments of confusion“ eins og hann segir um verk þeirra.

Jan hefur jafnframt því að reka stofu sína, verið kennari í meira enn tvo áratugi og er núna prófessor við arkitektadeild tækniháskólasn í Zürich – ETH, sem í allmörg ár hefur verið mjög spennandi kennsluvettvangur, með arkitekta frá ýmsum heimshornum í kennaraliði sínu. Jan hefur lagt áherslu á handteikningu og listrænt sköpunarferli nemenda sinna í kennslu sinni. Það var ákveðið uppgjör við viðteknum hefðum skólans sem hefur verið meira tengdur við fræðimennsku og rannsóknir.

Jan De Vylder verður hér á landi í næstu viku með nemendur sína á ferð um landið. Ferðin er hugsuð sem sköpunarferli og munu nemendurnir vera með teikniblokkir sínar á lofti alveg frá því þau lenda í Keflavík. Jan og aðstoðarkennarar hans munu standa fyrir fyrirlestraröðinni Seven Questions á leið sinni um landið með fyrirlesurum frá ýmsum heimshornum í umsjá Dags Eggerssonar arkitekts.