17 nemendur, einn fokkaði upp - útskriftarnemar við LHÍ halda sýningu í Segli 67

Síðastliðnar tvær vikur hafa útskriftarnemendur við myndlistardeild Listaháskóla Íslands dvalið á vegum Alþýðuhússins á Siglufirði.

Nemendurnir hafa starfað undir handleiðslu Aðalheiðar S. Eysteinsdóttur og Sindra Leifssonar ásamt því að hafa kynnst heimamönnum og menningarstarfsemi í Siglufirði og Eyjafirði. Öll eruð þið hjartanlega velkomin á samsýningu þeirra 17 nemendur, einn fokkaði upp í Segli 67 (Vetrarbraut 8-10, 580 Siglufjörður), þar sem sýndur verður afrakstur síðustu vikna. Opnun fer fram milli 15 og 18 laugardaginn 25. janúar en sýningin mun jafnframt standa opin sunnudaginn 26. janúar frá 14 til 17.
 
Listamenn:
Alexander Hugo Gunnarsson, Andri Þór Arason, Atli Pálsson, Auðunn Kvaran, Birkir Mar Hjaltested, Daníel Ágúst Ágústsson, Einar Lúðvík Ólafsson, Gréta Jónsdóttir, Kristján Thorlacius Finnsson, Margrét Dúadóttir Landmark, María Lind Baldursdóttir, Rakel Andrésdóttir, Renate Feizaka, Silfrún Una Guðlaugsdóttir, Sólbjört Vera Ómarsdóttir, Sölvi Steinn Þórhallsson og Tara Njála Ingvarsdóttir.
 
Styrktar- og samstarfsaðilar Listaháskóla Íslands eru Fjallabyggð, Kjörbúðin, Uppbyggingarsjóður Norðurlands Eystra, Segull 67, Aðalbakarí, Rammi og Torgið.