Leiðarljós Opna Listaháskólans

Opni Listaháskólinn er gátt Listaháskólans út í samfélagið þar sem þekking og reynsla fær að streyma óhindrað í báðar áttir. Markmið hans er meðal annars að glæða áhuga almennings á listum og veita sem breiðustum hópi fólks aðgang að þeirri sérþekkingu og aðstöðu sem Listaháskóli Íslands býr yfir.

Í Opna Listaháskólanum gefst starfandi listafólki og hönnuðum tækifæri til símenntunar, starfsþróunar og tengslamyndunar. Áhersla er lögð á að greina og bregðast við þörfum vettvangsins og eiga í virku samstarfi við fagfélög, fyrirtæki og stofnanir þar um.

Opni Listaháskólinn fagnar fjölbreytileika mannlífsins og því er kapp lagt á að tryggja aðgengi þeirra hópa sem hingað til hafa ekki átt greiðan aðgang að list- og menningarfræðslu, hvort sem er vegna búsetu, fötlunar, uppruna eða annarra þátta.

Viðburðir á vegum Opna Listaháskólans eru allt frá snörpum kvöldnámskeiðum fyrir almenning til stórra sérhæfðra námskeiða á meistarastigi.