Sláðu inn leitarorð
Úlfur Bæringur Skjöld Magnússon
Vistbýlisskólinn Eyrarbakka
„Aftur og aftur upphefur einyrkinn óð sinn, án virðíngar fyrir þeim öflum sem eiga forgángsréttinn að limum hans og örlögum til hinsta andardráttar.“ (Halldór Laxness, 1933)
Verkefnið snýr að endurskilgreiningu á sambandi samfélagsins við náttúruna. Afurðin er menntastofnun með það að markmiði að láta nemum í búskap í té nauðsynleg tól til vistvæns búskapar í samlyndi við náttúru landsins.
Fjölbreytt landslagið á svæðinu er lykilþáttur þar sem ylrækt, nýting sjávar og vistkerfi landsins verða í forgrunni. Náminu lýkur á önn þar sem nemendur ganga út í samfélag bænda með fullmótaða stefnu í sínum vistbúskap til jákvæðs sambýlis við náttúruöfl.





