Kallað er eftir efni í 7. tölublað.
Lengd texta: 500 - 5000 orð
Skilafrestur texta: 1. mars 2022 - Berist til: threads [at] lhi.is (subject: %C3%9Er%C3%A6%C3%B0ir%205.%20t%C3%B6lubla%C3%B0)
Texta skal senda inn sem .doc/docx skrá. Myndskrár skal senda sér: 300dpi (.tif, .png, .jpg, .pdf))
Viðmið varðandi innsenda texta:
- Tegundir texta: fræðilegar greinar, umfjöllun um tónverk, listrænar nálgarnir, aðferðafræði, þýðingar, listræn manifestó (yfirlýsingar), frjálslegar pælingar varðandi tónlistarstarf/kennslu/list viðkomandi eða annarra.
- Tímaritið er opið fyrir uppástungum hverju sinni varðandi textagerðir og má hér nefna sem dæmi umfjallanir eða úttektir á bókum, geisladiskum, tónleikum, hátíðum, o.s.frv. Einnig mætti hugsa sér heimildavinnslu eða viðtöl á myndbandsformi eða hljóðformi.
- Leitast verður til við að virkja nokkur lykilhugtök varðandi gerð texta og aðferða til að skapa þekkingu og skilning: „reflection“ eða ígrundun (í framkvæmd eða eftir framkvæmd), rýni (á eigin list eða annarra), tengsl (finna tengsl, búa til tengsl), samhengi, og bakvinnsla/ferli (hvað liggur að baki, umhverfis, framundan).
- Grunnflokkar: tónsmíðar/tónskáld, tónfræði, tónlistarfræði, flytjendur/flutningur, annað (gagnrýni/umfjöllun/dómur…)
- Lögð er áhersla á opinn vettvang og mikinn sveigjanleika varðandi tegundir texta og innsent efni.
- Höfundar eru hvattir til að nýta sér stafrænt umhverfi ritsins og bæta við hljóð-, vídeó- og myndskrám.
- Tímaritið stefnir á að innihalda bæði ritrýnt og óritrýnt efni.
- Vefritið leggur áherslu á íslenska tungu en þó verður einnig tekið á móti textum á ensku.
Áhugasamir geta haft samband í tölvupósti: threads [at] lhi.is