ÞRÆÐIR – Tölublað 7 – Um höfunda
Atli Ingólfsson nam tónsmíðar í Reykjavík, Mílanó og París og bjó lengi í Bologna og starfaði við list sína. Hann býr nú í Reykjavík, semur tónlist og kennir jafnframt hljómfræði og tónsmíðar. Verk hans eru mörg og af öllu tagi. Atli er prófessor í tónsmíðum við LHÍ.
Píanistinn Anna Þórhildur Gunnarsdóttir lauk B.Mus gráðu í píanóeinleik frá Listaháskóla Íslands árið 2019, undir leiðsögn Peters Máté og Eddu Erlendsdóttur. Í dag stundar Anna meistaranámi í píanóeinleik við Conservatorium Maastricht hjá prof. Katia Veekmans. Tónlistargreining og rannsóknir á þjóðlagaarfi er mikið áhugamál Önnu, en lokaritgerð hennar úr Listaháskóla Íslands var greining á notkun Jórunnar Viðar á þjóðlagaarfi Íslendinga í píanókonserti sínum Sláttu. Viðfangsefni meistararitgerðarinnar Önnu er ítarleg tónlistargreining á íslenskri píanótónlist frá árunum 1950 til 2010. Nýsköpun í klassískri tónlist er Önnu hjartans mál en árið 2020 komst hún í útslit nýsköpunarkeppninnar AIM - Award for Innovation in Music, ásamt kanadíska grafíska hönnuðinum Harmoney Lee, með myndbandsverkinu „Renascence“ sem er byggt á tónlist Jóns Leifs og myndskreyttum reynslusögum fólks frá Covid-19 faraldrinum. Anna hefur eflt menningarlíf heimabyggðar sinnar, Borgarfjarðar, bæði sem einleikari sem og í sönghópnum Borgarfjarðardætrum, sem skipuleggur reglulega tónleika og flytja allt frá klassískri tónlist til dægurlæga, sem og ýmis verk og útsetningar eftir meðlimi hópsins.
Dr. Einar Torfi Einarsson er tónskáld og aðjúnkt við tónlistardeild Listaháskóla Íslands. Hann nam tónsmíðar í Reykjavík, Amsterdam, Graz, og lauk doktorsprófi í tónsmíðum frá háskólanum í Huddersfield undir leiðsögn Aaron Cassidy. 2013-2014 gegndi hann rannsóknarstöðu við Orpheus Institute í Belgíu. Tónlist hans hefur verið flutt á tónlistarhátíðum um alla Evrópu og unnið til verðlauna í Hollandi og Austurríki. Undanfarið hafa verk hans lagt áherslu á tilraunakennda nótnaritun þar sem mörk tónlistar og myndlistar eru könnuð.
Dr. Helgi Rafn Ingvarsson (DMus) er tónskáld, stjórnandi, söngvari og stundakennari við Listaháskóla Íslands. Tónlist Helga hefur verið flutt víðsvegar á Íslandi og Bretlandseyjum af hópum eins og Kammersveit Reykjavíkur, Elektra Ensemble, Concorde Contemporary Music Ensemble, The Composers Ensemble, Chroma Ensemble, ALDAorchestra og meðlimum BBCSO svo dæmi séu tekin. Auk þess hefur hann samið og sviðsett fimm kammeróperur. Helgi nam tónsmíðar við Listaháskóla Íslands, Musikhögskolan i Malmö og Guildhall School of Music and Drama í London, og hefur hlotið viðurkenningar og stuðning frá m.a. Guildhall School Trust, Guildhall School Doctoral Candidate Development Fund, The Michael Tippett Musical Foundation, Arts Council England, Listamannalaunum, Tónskáldasjóði Ríkisútvarpsins, Lista-og menningarráði Kópavogsbæjar og STEF.
Sigurður Flosason lauk einleikarprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1983. Hann lauk bachelorprófi (1986) og mastersprófi (1988) frá Indiana University í Bandaríkunum í klassískum saxófónleik og jazzfræðum. Aðalkennarar hans voru Eugene Rousseau og David Baker. Framhaldsnám hjá George Coleman í New York 1988-89. Sigurður starfar á ólíkum sviðum íslensks tónlistarlífs. Geisladiskar hans, um þrjátíu talsins, spanna vítt tónlistarlegt svið, þ.m.t eigin tónsmíðar, jazzstandarda, frjálsan spuna og þjóðlagaúrvinnslu. Auk jazztónlistar liggur eftir Sigurð talsvert magn kórtónlistar. Sigurður hefur leikið mikið erlendis, bæði í eigin verkefnum og fjölþjóðlegum samstarfsverkenfum. Hann hefur átta sinnum hlotið Íslensku tónlistarverðlaunin og tvisvar verið tilnefndur til Tónlistarverðlauna Norðurlandaráðs. Hann hefur einnig hlotið tilnefningar til Dönsku tónlistarverðlaunanna og Tónlistarverðlauna DV. Frá 1989 til 2017 var Sigurður aðstoðarskólastjóri og yfirmaður jazzdeildar Tónlistarskóla F.Í.H. Hann hefur verið aðstoðarskólameistari og yfirmaður rytmískrar deildar MÍT (Menntaskóla í tónlist) frá 2017 og fagstjóri rytmísks kennaranáms við Listaháskóla Íslands frá 2018. Sigurður hefur haldið fjölmörg námskeið víða um land og erlendis, stýrt námskrárgerð og sinnt margvíslegum stjórnunar- og trúnaðarstörfum. Þá hefur hann verið formaður stjórnar Stórsveitar Reykjavíkur um langt árabil og stjórnandi margra verkefna hljómsveitarinnar.