Fyrir hver er námskeiðið: Námskeiðið hentar þeim sem starfa eða hafa hug á að starfa með börnum á leikskólaaldri og yngsta stigi grunnskóla. Valnámskeið í meistaranámi í listkennslu. 
 
Kynntar verða nokkrar leiðir til þess að vinna á skapandi hátt að þverfaglegum verkefnum tengdum sviðslistum með börnum í leikskóla og yngsta stigi grunnskóla. Áhersla er lögð á listrænar tilraunir og verkefni sem reyna á sjálfstæði og virkni þátttakenda. Námskeiðið byggir á verkefna- og hópvinnu.
 
Námsmat: Verkefni og virkni.
 
Kennari: Vigdís Gunnarsdóttir. 
 
Staður og stund: Laugarnes.
Fim. 28. mars kl. 16-18, laug. 30. mars 15-18,
Fim. 4. apríl kl. 16-18, laug. 6. apríl 10-15
 
Tímabil: 28. mars - 6. apríl, 2019, (4 skipti).
 
Tíma- og dagsetningar eru birtar með fyrirvara um breytingar.
 
Einingar: 2 ECTS.
 
Kjósi nemendur að taka námskeið án eininga gefur kennari verkefnum nemenda ekki endurgjöf. Verðmunur ræðst þ.a.l. af auknu vinnuálagi kennara.
 
Námskeið sem tekin eru án eininga geta þó skráðst, án eininga, á námsferil nemenda.
 
Verð: 30.500 kr. (án eininga) / 40.800 kr. (með einingum).
 
Forkröfur: BA. gráða / sambærilegt nám eða umtalsverð starfsreynsla með börnum.
 
Nánari upplýsingar: Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, verkefnastjóri listkennsludeildar. olofhugrun [at] lhi.is / 545 2249.