Vladimir Stoupel og Erna Vala Arnardóttir halda námskeið í píanóleik í júní 2024.
 
Námskeiðið er byggt upp sem hefðbundið klassískt hljóðfæranám í opnum einkatímum og hóptímum. Námskeiðið er ætlað píanónemendum á háskóla-, framhalds- og miðstigi. Lögð er áhersla á tækniskólun, góðan tónlistarflutning, ásamt þekkingu á mismunandi tónlistarstílum. Nemendur þjálfast í að koma fram, flytja verk fyrir framan hóp og taka tilsögn kennara. Nemendum gefst kostur á því að taka þátt í tónleikum  í lok námskeiðs.
 
Hæfniviðmið
Í lok námskeiðis munu nemendur hafa aukinn skilning á eftirfarandi: 
  • Tónlistarflutning, þekking og innsæi í mismunandi tónlistarstíla 
  • Tækniþjálfun í píanóleik
  • Þjálfun í að koma fram og flytja verk fyrir framan hóp 
Kennarar: Vladimir Stoupel og Erna Vala Arnardótttir píanóleikarar
Kennslutungumál: Íslenska og enska
Staðsetning: Húsnæði LHÍ í Skipholt 31, Dynjandi og Flyglasalur
Kennslutímabil: 14.-22. júní, tónleikar síðasta daginn
Kennsludagar: Kennt er alla daga einnig helgardaga, kennslutími er frá kl. 10:00-17:30
Kennslufyrirkomulag: 3 einkatímar, hóptímar og lokatónleikar, tímar eru ákveðnir í samráði við nemendur.
Námsmat: Virkni í tímum og tónlistarflutningur. Virkir þátttakendur fá skriflega umsögn leiðbeinenda.
Fyrir hverja er námskeiðið: Píanónemendur á háskóla-, framhalds- og miðstigi og aðra áhugasama hlustendur.
Einingar: 2 ECTS, einnig er hægt að taka námskeiðið án eininga ef nemendur hafa ekki lokið stúdentsprófi.
Forkröfur: Námskeiðið er ætlað nemendum á háskóla-, framhalds- og miðstigi í píanóleik. Vinsamlegast tilgreinið stig, kennara og/ tónlistarskóla í umsókn.
Verð: 55.000,- kr.
Staðsetning: Skipholti 31, 105 Reykjavík
Nánari upplýsingar:  Peter Máté, prófessor og fagstjóri LHÍ,  peter [at] lhi.is
 
Opnað verður fyrir umsóknir í apríl 2024.
 
ENGLISH
 
Piano Course with Vladimír Stoupel and Erna Vala Arnardótttir will be held summer 2024. The course is open for piano students at advanced, third and secondary level.
 
Instructors: Vladimír Stoupel and Erna Vala Arnardótttir 
Language: Icelandic and English 
Location: Skipholt 31, 105 Reykjavík  
Dates: 14.-22. June, concert the last day
Time: 10:00-17:30, please note also classes during the weekend
Format: Group and private lessons  
Evaluation: Participation and performance, students may participate in a concert at the end of course 
ECTS: 2 ECTS, students may also attend the course without credits 
Teaching language: Icelandic and English 
Preliminary requirement: For students at advanced, third and secondary level. Please write level, teacher and/or school in your application.  
Fee: 55.000,- ISK. 
Further information:  Peter Máté, Professer and programme director LHÍ, peter [at] lhi.is
 
Open for application from April 2024

FLÝTILEIÐIR

Forsíða
Verðskrá
Umsóknir 
Hagnýtar upplýsingar
Um Opna LHÍ

FYRIRSPURNIR
Peter Máté, peter [at] lhi.is