Sláðu inn leitarorð
Strengur // Þórdís Lilja Samsonardóttir
Strengur
Þórdís Lilja Samsonardóttir
Traustið býr í kviðnum
Það flæðir upp
í hjarta
fram í fingurgómana.
alltaf tengd
Fléttum saman fingrunum
Það situr fast fyrir innan naflan
Það er hlýtt í belgnum.
Ullin verndar
núningur hennar umvefur
strýkur vangan
Það er eitthvað handan.

Þórdís Lilja Samsonardóttir
Þórdís Lilja er á 3. ári í myndlist. Hún vinnur mikið með textíl og videó en innblásturinn dregur hún frá magatilfinningum, móðurlífinu og innsæinu.
,, Það hefur nýst mér vel til að vera í flæði og harmoníu með sjálfri mér. Tilfinningin knýr mig áfram í ferlið og ég reyni að leyfa huganum að reika."