Nemendamiðað nám Áhersla er lögð á lýðræðislega aðkomu nemenda að þróun og mótun náms. Stefnt er að því að auka sjálfstæði nemenda í vali á aðferðum og efnistökum, m.a. með auknum tengslum við fagvettvang. Komið er til móts við ólíkar þarfir nemenda, s.s. með þróun og innleiðingu raunfærnimats.
|
Náms- og starfsráðgjöf Stuðningur námsráðgjafa við nemendur verður aukinn með frekari ráðgjöf, fræðslu og þróun úrræða. Starfsráðgjöf fyrir nemendur sem eru að fóta sig á fagvettvangi verður efld.
|
Þverfaglegt nám Samstarf akademískra starfsmanna og nemenda verður styrkt þvert á deildir Listaháskólans. Tengsl kennslu, listsköpunar og rannsókna á milli ólíkra fagsviða verða efld. Lögð verður áhersla á aukið samstarf við önnur fræðasvið.
|
Þróun kennsluaðferða í listum Listaháskólinn verður áfram leiðandi í þróun kennsluaðferða í listum og akademískum starfsmönnum veittur frekari kennslufræðilegur stuðningur.
|
Þróun námsframboðs Hafin verður kennsla í kvikmyndagerð. Umhverfi meistaranáms verður styrkt þvert á Listaháskólann með hugmyndafræðilega samlegð í huga. Undirbúningur verður hafinn að doktorsnámi á fræðasviði lista.
|
Nám og tengsl við umheiminn Nám og kennsla miðast að því að styrkja tengsl staðbundins samhengis og alþjóðlegs umhverfis lista og menningar. Hæfni nemenda til að takast á við verkefni og áskoranir í alþjóðlegu og fjölmenningarlegu umhverfi verður efld. Lögð verður áhersla á að fjölga tækifærum til þátttöku í alþjóðlegum verkefnum.
|