Sláðu inn leitarorð
Sigurður Arent Jónsson
MFA Performing Arts
Djúpsævisaga mín

Djúpsævisaga mín er sögustund með sjálfsævisögulegu ívafi þar sem Sigurður Arent tvinnar saman sögunni af Keikó, háhyrningnum fræga úr Free Willy við eigin sögu. Til grundvallar Djúpsævisögu minni er hugmyndin um að við sem manneskjur performerum, komum fram og segjum sögur, í meginatriðum til að tengjast öðrum.
Thanks:
Bekkirnir mínir tveir í listaháskólanum og allir okkar frábæru kennarar
Alexander Robert
Brogan Davison
Dóra Jóhannsdóttir
Egill Viðarsson
Hallgerður Hallgrímsdóttir
Saga Sigurðardóttir
Bio:
Sigurður Arent Jónsson er sviðslistamaður, kennari og penni. Hann lauk BA-gráðu frá hinu Konunglega konservatorí í Skotlandi árið 2010. Síðan þá hefur hann unnið sem flytjandi og höfundur í margskonar samstarfsverkefnum á sviði leiklistar, dans og brúðuleikhúss. Sigurður bregður sér í ýmis hlutverk sem listamaður en í þessu meistaranámi hefur hann leitast við að þróa sína persónulegu nálgun. Sem stendur starfar hann með sviðslistahópnum Marmarabörn, brúðuleikhúsinu Handbendi og svissneska leisktjóranum Thom Luz.