Rannsóknastofa í tónlist (RíT)  - Centre for Research in Music (CRiM) 

Rannsóknarstofa í tónlist (RíT) framfylgir rannsóknarstefnu tónlistardeildar. RíT styður við rannsóknarverkefni deildarinnar og skapar vettvang til miðlunar, meðal annars með fyrirlestraröð og vefriti (sjá að neðan). Stofan leggur áherslu á fjölbreyttar aðferðir á rannsóknum, nýsköpun og þverfagleika. RíT stendur fyrir ráðstefnum, málþingum, mál- og vinnustofum í samstarfi við margvíslegar stofnanir, hópa og einstaklinga innanlands og utan.  

 

Þræðir 

Vefritið Þræðir er gefið út af tónlistardeild Listaháskóla Íslands og hefur það hlutverk að skapa vettvang og hvata fyrir hverskonar rannsóknarvinnu tengda tónlist innan sem utan skólans. Lögð er áhersla á opinn vettvang, þ.e.a.s. mikill sveigjanleiki er til staðar varðandi tegundir texta sem tímaritið inniheldur. Tekið er á móti stuttum sem löngum greinum/textum út frá ýmsum sjónarhornum (fræðilegum, fagurfræðilegum, pælingar, yfirlýsingar (manifesto), listrænar nálganir/aðferðir, umfjallanir, úttektir, o.fl.). Einnig má koma með uppástungur varðandi tegundir af textum. Kallað verður eftir textum ekki greinum til að leggja áherslu á fjölbreytileika tímaritsins. 

Vefritið beitir sér fyrir því að vera vettvangur fyrir: 
  • Orðræðu um tónlist á íslensku máli 
  • Miðlun þekkingar 
  • Varðveislu rannsókna 

Með vefritinu viljum við auka umsvif rannsókna á sviði tónlistar, skapa ný tækifæri og hvata, og vera miðstöð sjónarhorna innan tónlistar. 

Ritið má finna hér: www.lhi.is/thraedir
 

Ritstjórn: 
Atli Ingólfsson
Einar Torfi Einarsson 
Þorbjörg Daphne Hall 
 

 

Föstudagsfyrirlestrar 

Í fyrirlestraröð deildarinnar kynna kennarar tónlistardeildar og gestir eigin verkefni, rannsóknir og/eða listsköpun og ræða um tengsl þeirra við kennslu, listir eða samfélagið almennt. Fyrirlestraröðin er sett saman með nemendur deildarinnar í huga og er hún liður í því að rækta gagnrýna hugsun og umræðu auk þess að kynna fjölbreyttan starfsvettvang tónlistar. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir og er bæði fagfólk, nemendur og áhugafólk um tónlist hvatt til þess að mæta.