photo // owen fiene
Óhætt er að segja að með tilkomu námsleiðarinnar hefur íslenskt danssamfélag eflst mikið. Námsleiðin státar af einvalaliði af innlendum sem erlendum kennurum og listamönnum sem miðla til nemenda nýrri hugmyndafræði og aðferðum um danslistina. Þeirra innlegg, reynsla, fagmennska, áhugi og stuðningur er ómetanlegt og skilar árangri beint inn í fagið.
Námið á þessari námsleið er líkamlega sem andlega krefjandi, með löngum vinnudögum. Námið miðar að því að skila af sér tæknilegum og skapandi danslistamönnum sem nálgast viðfangsefni sín með rannsakandi og opnum huga og eru tilbúnir að takast á við krefjandi verkefni og síbreytilegt starfsumhverfi sviðslista.