Stafrænt gull

Mikið vatn hefur runnið til sjávar síðan viðskipti hverfðust um skipti á einni geit fyrir þrjár gulrætur. Stafræna byltingin hefur látið fátt ósnert og eru listaverk og greiðslumiðlar þar ekki undanskilin. Augnamið fyrsta tölublaðs Stafræns gulls er að veita þeim sem standa utan mengis rafmynta grunnskilning á fyrirbærinu. Til að skilja vissan undirflokk rafmynta, svokallað NFT, þurfum við að kynna okkur rafmyntir og tæknina sem býr þar að baki. Í því samhengi er einnig gagnlegt að þekkja sögu og þróun greiðslumiðla. Undir lok blaðsins er NFT-vegferð höfundar tekin saman með kortlagningu á ferlinu, þar sem markmiðið var að grafa eftir vissum persónum á íslensku seðlunum, Brynjólfi biskupi og Ragnheiði Jónsdóttur.