Fornafn: 
Steinunn
Eftirnafn: 
Ketilsdóttir

Steinunn lauk prófi í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík árið 2002 og BA-námi í dansi frá Hunter College í New York árið 2005. Árið 2016 hlaut hún meistaragráðu í performans fræðum frá NYU Tisch School of Arts þar sem hún hlaut Perfomance Studies verðlaunin við útskrift.

Steinunn Ketilsdóttir starfar sem dansari, danshöfundur, rannsakandi og kennari. Hún á að baki alþjóðlegan feril og hefur samið fjölda dansverka sem hafa verið sýnd beggja vegna Atlantshafsins. Steinunn hefur verið bæði verðlaunuð og tilnefnd fyrir verk sín og árið 2010 hlaut hún Grímuna í tveimur flokkum, sem höfundur og dansari í verkinu Superhero

Hún starfaði náið með danshöfundinum Brian Gerke frá árinu 2007 undir nafninu Steinunn and Brian en um þessar mundir eru danshöfundurinn Sveinbjörg Þórhallsdóttir og myndlistarkonan Jóní Jónsdóttir á meðal hennar helstu samstarfskvenna. 

Steinunn hefur um árabil verið í framvarðasveit í sjálfstæðu danssenunni á Íslandi og átti drjúgan þátt í að stofna til og móta starfsemi Reykjavík Dance Festival og Dansverkstæðisins. Auk þess að leiða og þróa rannsóknarverkefnið EXPRESSIONS hefur Steinunn hin síðustu misseri einbeitt sér að sólóverkefni sínu OVERSTATEMENT/OVERSTEINUNN.

Frá árinu 2007 hefur Steinunn reglulega starfað sem gestakennari við sviðlistadeildina en hefur nú tekið við fagstjórn á alþjóðlegu samtímadansbrautarinni ásamt Sögu Sigurðardóttur. 

Deild á starfsmannasíðu: