Fornafn: 
Kristín
Eftirnafn: 
Eysteinsdóttir
Kristín Eysteinsdóttir er rektor Listaháskóla Íslands. 
 
Kristín Eysteinsdóttir lauk meistaragráðu í leikstjórn frá Goldsmiths, University of London árið 2007 en áður hafði hún lokið BA námi í dramatúrgíu frá Árósarháskóla árið 2002. Kristín hefur leikstýrt um 20 sýningum í atvinnuleikhúsum og var fastráðinn leikstjóri við Borgarleikhúsið frá 2008 – 2014. Árið 2008 var hún valin leikstjóri ársins á Grímunni fyrir sýninguna Sá ljóti og var einnig tilnefnd til til sömu verðlauna árin 2010, 2012 og 2013. Kristín hefur jafnframt leikstýrt við Útvarpsleikhúsið og starfað sem dramatúrg við fjölda sýninga og hefur gegnt fjölmörgum ábyrgðarstöðum með stjórnarsetu og formennsku í ýmsum stjórnum og nefndum sem tengjast leiklist, menntun og útgáfu.

Kristín var ráðin leikhússtjóri Borgarleikhússins árið 2014 og gegndi þeirri stöðu til ársins 2020. Undir hennar stjórn náði Borgarleikhúsið eftirtektarverðum árangri bæði listrænt og rekstrarlega, aðsóknarmet í leikhúsið voru slegin og leikhúsið hlaut Grímuna, íslensku sviðslistaverðlaunin, fyrir sýningu ársins öll þau ár sem hún var leikhússtjóri. Þá lauk hún nýverið við fyrstu stuttmynd sína og hefur síðastliðin tvö ár verið að undirbúa sína fyrstu kvikmynd í fullri lengd sem er komin vel á veg í þróun. Kristín starfaði sem prófessor og fagstjóri við sviðslistadeild Listaháskóla Íslands skólaárið 2022-2023. 

Staða: 
Deild á starfsmannasíðu: