Edda Erlendsdóttir heldur námskeið í píanóleik í ágúst 2023.
Námskeiðið er byggt upp sem hefðbundið klassískt hljóðfæranám í opnum einkatímum og hóptímum. Námskeiðið er ætlað píanónemendum á háskóla-, framhalds- og miðstigi. Lögð er áhersla á tækniskólun, góðan tónlistarflutning, ásamt þekkingu á mismunandi tónlistarstílum. Nemendur þjálfast í að koma fram, flytja verk fyrir framan hóp og taka tilsögn kennara. Nemendum gefst kostur á því að taka þátt í tónleikum  í lok námskeiðs. 
 

Piano Course with Edda Erlendsdóttir will be held summer 2023. 
The course is open for piano students at advanced, third and secondary level. 

KennariEdda Erlendsdóttir, píanóleikari 
Hæfniviðmið:  Í lok námskeiðis munu nemendur hafa betri skilning á eftirfarandi viðfangsefnum:  
- Tónlistarflutningur, þekking og innsæi í mismunandi tónlistarstíla  
- Tækniskólun í píanóleik - þjálfun í að koma fram, flytja verk fyrir framan hóp  
Kennslutungumál: Íslenska og enska 
StaðsetningHúsnæði LHÍ í Skipholt 31, Flyglasalur 
Kennslutímabil: 8.-18. ágúst, tónleikar síðasta daginn
KennsludagarKennt er alla daga einnig helgardaga, kennslutími er frá kl. 10:00-17:30
Kennslufyrirkomulag: einkatímar, hóptímar og lokatónleikar, tímar eru ákveðnir í samráði við nemendur  
Námsmat Virkni í tímum og tónlistarflutningur. Virkir þátttakendur fá skriflega umsögn leiðbeinenda. 
Fyrir hverja er námskeiðiðPíanónemendur á háskóla-, framhalds- og miðstigi og aðra áhugasama hlustendur. 
Einingar: 2 ECTS, einnig er hægt að taka námskeiðið án eininga ef nemendur hafa ekki lokið stúdentsprófi. 
Forkröfur: Námskeiðið er ætlað nemendum á háskóla-, framhalds- og miðstigi í píanóleik. Vinsamlegast tilgreinið stig, kennara og/ tónlistarskóla í umsókn. 
Verð: Námskeiðið kostar 50.000 kr alls
Staðsetning: Skipholti 31, 105 Reykjavík
Nánari upplýsingar:  Karólína Stefánsdóttir, verkefnastjóri, karolinas [at] lhi.is 

Sækja um
 

 

//

ENGLISH

Instructor:  Edda Erlendsdóttir 
Language: Icelandic and English 
Location: Skipholt 31, 105 Reykjavík  
Dates: 8.-18th of August 2023, concert the last day
Time: 10:00-17:30, please note also classes during the weekend
Format: Group and private lessons  
Evaluation:  Participation and performance, students may participate in a concert at the end of course 
ECTS: 2 ECTS, students may also attend the course without credits 
Teaching language: Icelandic and English 
Time: Taught every day also the weekends, from 10:00 to 17:30, group and private lessons   
Preliminary requirement: For students at advanced, third and secondary level. Please write level, teacher and/or school in your application.  
Fee:  50.000 kr 

Further information:  Karólína Stefánsdóttir, project manager, karolinas [at] lhi.is
Apply here

 

FLÝTILEIÐIR

Forsíða
Verðskrá
Umsóknir 
Hagnýtar upplýsingar
Um Opna LHÍ

FYRIRSPURNIR
karolinas [at] lhi.is