Sláðu inn leitarorð
Olga
Kristín Soffía Þorsteinsdóttir
Olga
„Þetta verkefni er ekkert án ykkar,“ sagði ég við konurnar fjórar sem mættar voru í Ljósið til að spjalla við mig um reynslu sína af því að þurfa að bera á sér dren og slöngur eftir aðgerð. Þá vissi ég ekki að þær myndu opna heim minn upp á gátt fyrir lífi og tilveru kvenna sem greinst hafa með brjóstakrabbamein. Eftir tæpar tvær klukkustundir af sögum, þögnum, spurningaflóði, hlátri og nokkrum tárum kvaddi ég þær og fann hversu lítils megn þakklætisorð mín voru. Þessar konur höfðu ekki einungis kollvarpað verkefninu heldur breytt mér – og þennan örlagaríka dag varð verkefnið Olga til.