Samningurinn var undirritaður í dag og nær til þriggja ára. Þar með verður eins konar uppskeruhátíð LHÍ í tónlist, myndlist og hönnun á menningartorfu Kópavogsbæjar á vorin því fyrr í vetur var ákveðið að útskriftarsýningar meistaranema í myndlist og hönnun yrðu haldnar í Gerðarsafn.

Útskriftartónleikarnir eru fjármagnaðir með framlagi úr lista- og menningarsjóði Kópavogsbæjar en tilgangur sjóðsins er að efla menningarlífið í bænum. Aðgangur að tónleikum LHÍ verður ókeypis og allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir. Tónleikarnir verða auglýstir á vef Listaháskóla Íslands og Salarins.

Salurinn og Gerðarsafn standa hlið við hlið en á sömu torfu er einnig Tónlistarsafn Íslands. Með samningnum í dag fær tónlistardeild LHÍ einnig aðgang að því safni fyrir útskriftarnema skólans og verkefni þeirra.

Samningurinn var undirritaður af þeim Karen E. Halldórsdóttur, formanni lista- og menningarráðs, Aino Freyju Järvelä, forstöðumanni Salarins, Fríðu Björk Ingvarsdóttur, rektor Listaháskóla Íslands, og Kjartani Ólafssyni, prófessor við LHÍ.

Fríða Björk Ingvarsdóttir: „Þessi samningur er Listaháskóla Íslands mikils virði því hann gerir okkur kleift að bjóða útskriftarnemum okkar í tónlist að vinna lokaverkefni sín í fullkomlega faglegu umhverfi. Slíkt skiptir miklu máli, ekki síst vegna þess að við vitum að þessir nemendur eiga eftir að setja mark sitt á tónlistarlífið í framtíðinni og útskriftartónleikarnir eru iðulega þeirra fyrsta skref inn í atvinnumennsku á sviði tónlistar. Aðstæður í Salnum eru allar til mikillar fyrirmyndar og sannarlega ánægjulegt að kynna þar til sögunnar nýja kynslóð tónlistarmanna og um leið afrakstur skólastarfsins.“

Karen E. Halldórsdóttir: „Það er okkur mikið ánægjuefni hér í Kópavogi að ganga til nánara samstarfs við Listaháskóla Íslands. Menningartorfan okkar í Kópavogi mun iða af lífi á vorin þegar ungir og frjóir listamenn frá Listaháskóla Íslands kynna þar listsköpun sýna í Salnum, Gerðarsafni og jafnvel í Tónlistarsafni Íslands. Um leið auðgum við menningarlífið og styrkjum enn frekar starfsemi menningarhúsa Kópavogsbæjar.“