Samningur þess efnis var undirritaður í Gerðarsafni í dag. Meistaranám í myndlist og hönnun við Listaháskólann hófst haustið 2012 og brautskráir skólinn fyrstu nemendur námsbrautanna tveggja næsta vor. Fyrsta útskriftarsýning meistaranemanna verður því haldin í apríl. Samningurinn nær til þriggja ára.

Samningurinn var undirritaður af Ármanni Kr. Ólafssyni bæjarstjóra, Karen E. Halldórsdóttur, formanni lista- og menningarráðs, Fríðu Björk Ingvarsdóttir, rektor Listaháskóla Íslands, Sigrúnu Birgisdóttur, deildarforseta hönnunar- og arkitektúrdeildar LHÍ og Kristjáni Steingrími Jónssyni, deildarforseta myndlistardeildar LHÍ.

Mikil ánægja er með samninginn og er talið að hann auki enn veg skapandi greina og efli um leið menningarlífið í Kópavogi.

Ármann Kr. Ólafsson: „Það er okkur í Kópavogi mikils virði að fá að hýsa útskriftarsýningu meistaranema frá LHÍ. Með  því leggur bærinn sitt af mörkum til að styðja við bakið á ungu og efnilegu listafólki og hönnuðum. Um leið fær hann tækifæri til að sýna hve vel er hlúð að menningu og listum í bænum. Gerðarsafn, eitt öflugasta listasafn landsins, er á Borgarholtinu, þar sem fyrir eru fleiri söfn og menningarhús, svo sem Salurinn, fyrsti sérhannaði tónleikasalur landsins. Menningarhúsin og umhverfi þeirra býður upp á ýmsa möguleika fyrir skapandi listafólk og vonandi er þetta fyrsta skrefið að frekara samstarfi við LHÍ.“

Fríða Björk Ingvarsdóttir: „Með tilkomu meistarnáms í hönnun og myndlist haustið 2012 var brotið blað í sögu menntunar á fagsviðunum tveimur á Íslandi.  Þróun hönnunarverkefna, listsköpunar og sjálfstæðra rannsókna meistaranema kristallast í lokaverkefni námsins sem sýnt er á opinberum vettvangi. Það er því afar mikilvægt fyrir Listaháskólann að ganga til samstarfs við öflugt listsafn á höfðuborgarsvæðinu og fá að tengjast og taka þátt í gróskumiklu menningarlífi Kópavogsbæjar.  Væntingar okkar og óskir eru þær að báðir aðilar munu njóta góðs af og að skapandi greinar muni halda áfram að styrkjast og dafna fyrir þann áhuga og þá tiltrú sem hér er sýnd í verki. “

Í meistaranámi LHÍ fá myndlistamenn og hönnuðir tækifæri til að dýpka og auka þekkingu sína í frjóu akademísku umhverfi. Áhersla er lögð á skapandi og greinandi hugsun sem nýtist við framsækin verkefni á fagsviðum hönnunar og myndlistar á Íslandi.

Gerðarsafn er í jaðri Borgarholtsins í Kópavogi og var opnað árið 1994. Það ber nafn Gerðar Helgadóttur myndhöggvara sem lést fyrir aldur fram árið 1975. Safnið er á tveimur hæðum og þar hefur megin áherslan verið lögð á samtíma- og nútímalist.