• Halldór Smárason, sem útskrifast með BA gráðu í tónsmíðum nú í vor, fékk styrk til að leggja stund á mastersnám í tónsmíðum við Manhattan School of Music.
  • Katrín Inga Jónsdóttir Hjördísardóttir, sem útskrifaðist með BA gráðu í myndlist 2008, hlaut styrk til að hefja meistaranám í myndlist við School of Visual Arts í New York.

Við óskum þeim Halldóri og Katrínu til hamingju með styrkinn og óskar þeim góðs gengis í náminu.

Styrkir Fulbright stofnunarinnar eru auglýstir í október.  Nánari upplýsingar um styrki sem Fulbright veitir er að finna á heimasíðu stofnunarinnar, www.fulbright .is