Á vetrarhátíð vinnur hann verk í Grasagarði Reykjavíkur í samstarfi við Listkennsludeild Listaháskóla Íslands. Á safnanótt 8. febrúar verður verkið fullgert en þá munu listkennslunemendur bjóða gestum safnanætur í spennandi verkefni.

Dagana 6.-18. febrúar verða sýndar ljósmyndir af verkum Timo Jokela í gönguás Ráðhúss Reykjavíkur. Í verkum sínum vinnur hann með náttúruleg efni s.s. tré, snjó og ís,
gjarnan út frá menningararfleið þeirra staða þar sem verkin eru sýnd.